Virkjun við Búrfell
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda, hv. 2. þm. Austurl., fyrir þessa fsp. Hún hefur komið því til leiðar að hér hefur verið upplýst að Landsvirkjun hefur farið langt út fyrir þau mörk sem má telja eðlilegt í vinnubrögðum. Og það er rétt sem hér kemur fram, og ég held ég taki undir það, að það er ekki eðlilegt að stofnanir eins og Landsvirkjun framkvæmi fyrir hundruð milljóna eða jafnvel milljarða án þess að hafa heimildir Alþingis til þess. Það er brýnt að hæstv. iðnrh. beiti sér fyrir því að leyfi, ef á að gefa leyfi til virkjunar og útboðs á vélbúnaði og fleiru, verði borin hér upp í Alþingi til samþykktar eða synjunar. Það er ekki nokkur vegur að bjóða þinginu það að stofnanir sem ríkið á fari svo með fjármuni þjóðarinnar sem varða bæði raforkuverð til almennings og fyrirtækja.