Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Rétt aðeins vegna athugasemda hæstv. fjmrh., þá liggur það í augum uppi að það var fyrst eftir að skriður komst á viðræður um nýja stóriðju hér á landi sem það varð raunhæft að óska eftir lagaheimildum hér að lútandi, og ef við ætlum að vera sjálfum okkur samkvæmir og freista þess að ná slíkum samningum og meinum eitthvað með því sem við segjum í því efni er kominn sá tími að það er nauðsynlegt að afla þessarar lagaheimildar. Það er þess vegna sem það er gagnrýni vert nú hversu það hefur dregist á þessu þingi að það frv. yrði lagt fram af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. ( Fjmrh.: Þetta var bara leikaraskapur hjá Sjálfstfl. áður.)