Sjúkrasamlög
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
    Hæstv. forseti. Lög þau um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem taka munu gildi nú um áramótin hafa óhjákvæmilega í för með sér umtalsverða röskun á rekstri ýmissa stofnana, ekki síst hér í Reykjavík. Varðar sú röskun jafnt starfskjör starfsmanna sem og þjónustu við íbúana.
    Hér í Reykjavík hafa menn verulegar áhyggjur af samruna Sjúkrasamlags Reykjavíkur og Tryggingastofnunar ríkisins og óttast að nokkuð skorti á um undirbúning þess máls. Sjúkrasamlagið veltir um tveim milljörðum kr. árlega og eru daglegar afgreiðslur á bilinu 300--500 talsins. Í samlaginu vinna 28 manns sem teljast verður ótrúlega fátt starfsfólk, enda um starfsmenn að ræða sem unnið hafa áratugum saman í stofnuninni margir hverjir.
    Nú hefur verið rætt um að flytja stofnunina í heilu lagi í húsnæði Tryggingastofnunar ríkisins, sem hlýtur að þurfa að útvega, því að ekkert rými er í því húsnæði sem hún ræður yfir nú og gætu menn þá efast um þann sparnað sem af því kynni að leiða. T.d. má geta þess að nýlega er lokið umfangsmikilli tölvuvæðingu í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur sem kostaði tugi milljóna og það fé færi þar með fyrir lítið.
    Við hæstv. heilbrrh. höfum nokkrum sinnum átt orðastað um sjúkradagpeningagreiðslur hér í þessum sal og þá oftast um það hversu skammarlega lágar þær eru. En það er þó mikilvægt að þær séu a.m.k. afgreiddar fljótt og vel. Á sama hátt hygg ég að foreldrum brygði við ef greiðsla tannlæknareikninga drægist úr hófi og þannig mætti lengi telja. Það er allra mál að afgreiðsla Sjúkrasamlags Reykjavíkur sé með ágætum og leitun er að stofnun sem eins mikilvægt er að sinni verkefnum sínum með velferð viðskiptavinanna að markmiði.
    Þá er staða starfsmanna að sjálfsögðu ærið óljós og verður komið að því hér á eftir í annarri fsp. en ástæða er til að spyrja hæstv. heilbrrh. hvernig hann telji þá stöðu vera tryggða. Hér mun hæstv. fjmrh. svara þeirri fsp. á eftir, en ég vildi gjarnan heyra álit hæstv. heilbrrh. einnig á því.
    Virðulegur forseti. Fsp. mín er á þskj. 84 og hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,1. Hvað líður undirbúningi að yfirtöku Tryggingastofnunar ríkisins á starfsemi sjúkrasamlaga?
    2. Hvað líður undirbúningi í Reykjavík?
    3. Hvar er fyrirhugað að starfsemin fari fram?
    4. Hvernig verður staða starfsmanna Sjúkrasamlags Reykjavíkur að því er tekur til ráðningar og launakjara frá 1. jan. 1990?
    5. Er tryggt að Reykvíkingar njóti jafngóðrar þjónustu og verið hefur eftir breytinguna?``