Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Hv. þm. Guðrún Helgadóttir hefur beint til mín nokkrum fsp. varðandi verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og afleiðingar af þeirri lagasetningu sem hér fór fram á síðasta þingi og hvernig það horfi við breytingum sem varða málefni sjúkrasamlaganna. Hefur hún gert grein fyrir þessum liðum fsp. 1. liðurinn var: ,,Hvað líður undirbúningi yfirtöku Tryggingastofnunar ríkisins á starfsemi sjúkrasamlaga?``
Í júní sl. var strax hafinn undirbúningur að yfirtöku Tryggingastofnunar ríkisins á starfsemi sjúkrasamlaganna. Á fundi tryggingaráðs 19. júní 1989 var gengið frá bréfum til allra forsvarsmanna sjúkrasamlaga þar sem þeim var skýrt frá efni hinna nýju laga og falið að gera tilteknar, nauðsynlegar ráðstafanir vegna þeirra. Jafnframt var sett á laggirnar nefnd þriggja starfsmanna Tryggingastofnunarinnar til að undirbúa hin nýju viðfangsefni sem lögunum fylgja. Á sama fundi var einnig samþykkt að fara þess á leit við dómsmrn. að sýslumenn og bæjarfógetar tækju að sér umboð sjúkratrygginga utan Reykjavíkur eins og gildir um aðrar greinar almannatrygginga og tryggja að verkefninu yrði sinnt með viðunandi hætti undir umsjón og yfirstjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Hefur dómsmrn. orðið við þessum tilmælum og munu sýslumenn og bæjarfógetar taka að sér umboðsstörf á sviði sjúkratrygginga frá 1. jan. 1990. Er í samkomulagi við dómsmrn. m.a. gengið þannig frá málum að tryggingaráð getur sagt upp þjónustu einstakra umboða ef það telur að ekki sé veitt sú þjónusta sem lög og reglugerðir segja til um eða ekki hlýtt stjórnvaldsfyrirmælum Tryggingastofnunar ríkisins.
Meginstefna tryggingaráðs við yfirtöku og starfsemi sjúkrasamlaganna er að tryggja að þjónusta verði a.m.k. jafngóð og verið hefur og víða betri með því að m.a. megi einnig nýta útibú embætta sýslumannanna eftir því sem tök eru á. Við yfirtökuna hefur verið gengið út frá þeirri reglu að núverandi starfsfólk sjúkrasamlaga eigi forgangsrétt að þeim störfum á sviði sjúkratrygginga sem ráða þarf í. Hefur fyrrgreind undirbúningsnefnd Tryggingastofnunar unnið að þessum málum í samráði við starfsmenn dómsmrn. og fjmrn. og er víðast hvar búið að ganga frá þessum málum starfsmanna. Munu þeir örfáu sem ekki fá sambærilegt starf í hinu nýja kerfi njóta biðlauna. Munu flestir sýslumenn og bæjarfógetar þegar hafa gert viðeigandi ráðstafanir í húsnæðismálum sínum og eru þeir þess albúnir að takast á við hið nýja verkefni.
2. liður fsp. var síðan: ,,Hvað líður undirbúningi í Reykjavík?`` Í Reykjavík mun sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins yfirtaka starfsemi Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá næstu áramótum. Hefur deildin verið endurskipulögð í samráði við heilbr.- og trmrn. og fjmrn. til þess að takast á við þau auknu verkefni sem yfirtökunni fylgja. Tekið skal fram að flest þau verkefni sem Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur
haft með höndum hefur sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar einnig annast í meira eða minna mæli fyrir hönd sjúkrasamlaga utan Reykjavíkur auk þess að hafa haft faglega yfirumsjón með öllum sjúkrasamlögum í landinu. Þannig er deildin við yfirtökuna í raun einungis að auka starfsemi sem hún hefur þegar með að gera í dag. Þar við bætist, eins og síðar verður getið nánar, að flest af núverandi starfsfólki Sjúkrasamlags Reykjavíkur mun koma til starfa hjá Tryggingastofnun og þar með tryggja enn frekar hnökralitla yfirtöku á verkefnum samlagsins. Hafa þegar verið gerðar viðeigandi ráðstafanir á flestum þeim sviðum sem breytinguna snerta, bæði á sviði þjónustu, starfsmannahalds og tölvutækni. Önnur atriði eru hins vegar þess eðlis að ekki er raunhæft að ganga frá þeim fyrr en dregur nær áramótum.
Þriðji liður fsp. var síðan: ,,Hvar er fyrirhugað að starfsemin í Reykjavík fari fram?`` Starfsemin í Reykjavík mun fyrst um sinn fara fram bæði í núverandi skrifstofuhúsnæði Tryggingastofnunar ríkisins að Laugavegi 114 og í núverandi skrifstofuhúsnæði Sjúkrasamlags Reykjavíkur að Tryggvagötu 28. Verður auglýst rækilega í fjölmiðlum þegar nær dregur áramótum hvaða þættir starfseminnar verða á hvorum stað. Æskilegt er hins vegar að öll þessi starfsemi fari fram á sama stað. Heilbr.- og trmrn. mun því vinna að því að finna Tryggingastofnun ríkisins hentugt viðbótarhúsnæði þannig að í framtíðinni geti starfsemin rúmast undir einu þaki. Er því hér í raun um bráðabirgðaástand að ræða.
Fjórði liður fsp. var síðan: ,,Hvernig verður staða starfsmanna Sjúkrasamlags Reykjavíkur að því er tekur til ráðningar og launakjara frá 1. jan. 1990?`` Öllum starfsmönnum Sjúkrasamlags Reykjavíkur nema forstjóra þess og einum starfsmanni sem hefur unnið þar mjög skamma hríð, hefur verið boðin vinna hjá Tryggingastofnun, í flestum tilvikum við sambærileg störf og þeir hafa gegnt í samlaginu. Af þessum hópi hafa tveir afþakkað starf, þar af annar með vísan til þess að um ósambærilegt starf væri að ræða. Ljóst er því að samtals munu koma til starfa hjá Tryggingastofnun 22 af starfsmönnum samlagsins. Munu þeir njóta launakjara sem opinberir starfsmenn fá frá 1. jan. 1990, þó þannig að
með áunnin réttindi verður að mestu farið eins og þeir hefðu unnið á einum og sama vinnustað frá upphafi. Flestir munu lækka í launum við að fara yfir til ríkisins um einn til fimm launaflokka. Verður þeim tryggður mismunur þess í formi biðlauna í 6--12 mánuði eftir því sem við á. Þeir starfsmenn sem ekki eiga kost á sambærilegu starfi hjá Tryggingastofnun munu njóta biðlauna í 6--12 mánuði frá næstu áramótum.
Hæstv. forseti. Ég á enn eftir einn lið fsp. en ég er alveg ljúka máli mínu. Þar er spurt: ,,Er tryggt að Reykvíkingar njóti jafngóðrar þjónustu og verið hefur eftir breytinguna?`` Þess er að vænta að þjónusta bæði við Reykvíkinga og aðra landsmenn versni ekki við breytinguna. Samkvæmt lögum um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga, nr. 87/1989, verður engin breyting á þeim bótum sem sjúkratryggingar greiða þegar í dag. Í langflestum tilvikum, 26 af 30 á öllu landinu, verða það þaulvanir fyrrum starfsmenn sjúkrasamlaga eða Tryggingastofnunar sem annast munu starfsemina áfram eftir breytinguna. Ekki eru því finnanlegar neinar forsendur fyrir því að þjónustan versni frá því sem verið hefur. Hins vegar hlýtur eðli málsins samkvæmt að vera að vænta einhverra byrjunarörðugleika fyrstu daga á nýja árinu einhvers staðar. Að búast við öðru væri óraunhæft þar sem um verulega breytingu er í raun að ræða.