Heilsugæslustöðvar í Reykjavík
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Hv. þm. Guðrún Helgadóttir hefur beint til mín annarri fsp. sem hún hefur gert grein fyrir og fjallar einnig um framkvæmd á vissum þáttum sem eru afleiðingar af verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga samkvæmt lögum nr. 87/1989 og hv. þm. hefur nú gert grein fyrir.
    Fyrirspurnin er í tveimur liðum og fyrri liðurinn hljóðar svo: ,,Hvað líður undirbúningi að yfirtöku ríkisins á rekstri heilsugæslustöðva í Reykjavík?`` Samkvæmt áður greindum lögum nr. 87/1989, um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, tekur ríkið yfir rekstur heilsugæslunnar í landinu frá og með nk. áramótum. Allur reksturskostnaður vegna reksturs heilsugæslustöðva fer frá og með þeim tíma yfir á ríkið, en hann er í dag samkvæmt gildandi lögum í höndum sveitarfélaganna ef frá er talinn launakostnaður vegna lækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og sjúkraþjálfara. Þessi breytta skipan hefur í för með sér að heilbr.- og trmrn. tekur yfir rekstrarhlutverk sveitarfélaganna.
    Í þessu sambandi er rétt að benda á að í reynd er um að ræða þrenns konar rekstrarform heilsugæslustöðva. Það eru í fyrsta lagi sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar. Það eru í öðru lagi heilsugæslustöðvar sem eru í starfstengslum við sjúkrahús eða aðrar heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili í sumum tilfellum, og í þriðja lagi heilsugæslustöðvar í Reykjavík.
    Ákveðið hefur verið að starfsemi sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðva flytjist yfir á ríkið þegar um nk. áramót, enda er gert ráð fyrir því í verkaskiptingarlögunum sem samþykkt voru sl. vor að ráðuneytið skipi stjórnir þeirra stöðva og að formaður skuli skipaður af ráðherra án tilnefningar. Það er samkvæmt þeim lögum sem samþykkt voru og þannig hljóða ákvæði um stjórnir þessara heilsugæslustöðva. Stjórnir sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðva starfa því á ábyrgð ráðuneytisins frá og með nk. áramótum.
    Hvað snertir starfsemi heilsugæslustöðva í starfstengslum við sjúkrahús hefur verið ákveðið að fresta yfirfærslunni og helgast það ekki síst af því að ekki náðist fram á síðasta þingi breyting á stjórnum þeirra en samkvæmt núgildandi lögum um heilbrigðisþjónustu fara stjórnir sjúkrahúsa með stjórn heilsugæslustöðvanna sé um starfstengsl milli þeirra að ræða. Ráðuneytið vill því freista þess að ná fram breytingum á lögum áður en stjórnunarleg yfirfærsla starfseminnar fer til ríkisins og hef ég þegar lagt fram frv. í því skyni og mælt fyrir því í Ed. nú fyrr í þessari viku.
    Sama gildir reyndar um þriðja þáttinn sem er starfsemi heilsugæslustöðva í Reykjavík. Ekki náðust fram breytingar á stjórn heilsugæslustöðva í Reykjavík á síðasta þingi. Samkvæmt núgildandi kerfi er stjórn þeirra í höndum heilbrigðisráðs eða Heilbrigðismálaráðs Reykjavíkurborgar sem starfar á vegum sveitarfélagsins.

    Ákvörðun var á sama hátt tekin um að fresta yfirtöku heilsugæslustöðva í Reykjavík og freista þess að leggja til breytingar þannig að stjórn þeirra yrði skipuð á sama hátt og annarra sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðva eins og ég gerði grein fyrir áðan. Gert er ráð fyrir þessum breytingum í frv. sem nefnt var fyrr. Nái þær fram að ganga er reiknað með að á næstu kannski 2--3 árum verði kerfi heilsugæslu að fullu komið til framkvæmda og að starfræktar verði allt að 13 heilsugæslustöðvar í Reykjavík, eins og fram kemur í frv. sem liggur fyrir þinginu, auk heilsugæslustöðvarinnar á Seltjarnarnesi sem sinnir hluta af Vesturbænum í Reykjavík, þ.e. sunnan Hringbrautar og vestan Suðurgötu samkvæmt sérstöku samkomulagi þar um.
    Seinni liður fsp. var: ,,Hvaða aðilar veittu upplýsingar um starfsemi þeirra stöðva og fjárþörf við gerð fjárlagafrv.?`` Upplýsingar um starfsemi stöðvanna, allra, ekki bara hér í Reykjavík, heldur allra heilsugæslustöðvanna, og fjárþörf í tengslum við vinnslu fjárlagafrv. voru fengnar hjá stjórnum heilsugæslustöðvanna og upplýsingar fengnar frá sveitarfélögunum víða hvar þar sem fjárreiður stöðvanna hafa verið á þeirra snærum en hér í Reykjavík frá heilbrigðismálaráði og annaðist framkvæmdastjóri heilsugæslustöðva í Reykjavík upplýsingagjöfina. Ráðuneytið lítur svo á að fyrir liggi allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi rekstur heilsugæslustöðva í Reykjavík, og ég verð að segja það út af ummælum hv. fyrirspyrjanda, sem telur að lítið samráð hafi verið haft af hálfu starfsfólks ráðuneytisins við þessa upplýsingaöflun, að ég held þvert á móti að í það hafi verið lögð mjög mikil vinna. M.a. kom í ljós í þeirri vinnu að þær upplýsingar sem lagðar voru fram í fyrra, þegar verkaskiptafrv. var til meðferðar á Alþingi, voru að verulegu leyti ónákvæmar og jafnvel rangar. Upplýsingarnar sem aflað hefur verið núna með mikilli vinnu og samskiptum við forsvarsmenn allra heilsugæslustöðvanna leiða það því í ljós að þarna er um að ræða miklu meiri kostnað sem nú kemur yfir á ríkið frá sveitarfélögunum heldur en áður hafði verið ráð fyrir gert, og það held ég að sé einmitt því að þakka að nú hefur verið farið mjög rækilega ofan í þessi mál.