Tilkynning um utandagskrárumræðu
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að kl. 1 hefjast hér umræður utan dagskrár að beiðni hv. 18. þm. Reykv., Sigríðar Lillýjar Baldursdóttur, um olíuleka frá birgðastöð á Bolafjalli. Sú umræða fer fram samkvæmt fyrri lið 32. gr. þingskapa og skal ekki standa lengur en hálftíma.