Alþjóðleg friðarvika Sameinuðu þjóðanna
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Sigríður Lillý Baldursdóttir):
    Virðulegur forseti. Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á sl. ári var gerð samþykkt þess efnis að sú vika sem innihéldi 11. nóvember yrði alþjóðleg vika vísinda í þágu friðar.
    Óhugnanlegt er að hugsa til þess að stærstu vísinda- og tækniuppgötvanir í heiminum hafa iðulega tengst þróun í framleiðslu á vígvélum enda hafa ráðamenn ekki horft í aurinn þegar vopn eru annars vegar. Það er löngu tímabært að hverfa af þessari braut og neyta til þess allra krafta. Með viku vísinda í þágu friðar gera Sameinuðu þjóðirnar tilraun til að brjóta upp þessa hugsun og fá vísinda- og tæknimenn til að skoða störf sín sérstaklega með tilliti til friðsamlegrar notkunar.
    Friðarvika þessi hefur verið haldin með einhverjum hætti í 20--30 ríkjum frá því 1986. En eins og áður sagði var hún samþykkt á sl. ári hjá Sameinuðu þjóðunum sem alþjóðleg friðarvika.
    Aðalritari Sameinuðu þjóðanna beindi í framhaldi af því þeim tilmælum til ríkisstjórna aðildarríkjanna að sjá til þess m.a. að stofnanir eins og háskólar og aðrar menningar- og vísindastofnanir standi að fyrirlestrahaldi og umræðufundum þar sem rætt verði með hvaða hætti hagnýta megi vísinda- og tækniframfarir í þágu friðar. Því spyr ég hæstv. forsrh.: ,,Á hvern hátt hefur ríkisstjórnin stuðlað að þátttöku Íslands í alþjóðlegri friðarviku Sameinuðu þjóðanna 6.--12. nóvember 1989?``