Alþjóðleg friðarvika Sameinuðu þjóðanna
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Það verður væntanlega upplýst hvernig á því stendur að upplýsingar um þessa ákvörðun hafa ekki borist til íslenskra stjórnvalda. Mér finnst óhjákvæmilegt að hæstv. utanrrh. athugi það mál, því hans eru tengslin við Sameinuðu þjóðirnar.
    Ég tel að Íslendingar hafi ekki sinnt tilefnum sem þessu nógsamlega á undanförnum árum og það á einnig við um það friðarár sem Sameinuðu þjóðirnar ákváðu fyrir nokkru síðan. Framkvæmd á því af Íslands hálfu var því miður ekki með þeim myndugleik sem tilefnið var til. Nú þegar Sameinuðu þjóðirnar eru í rauninni að aukast að gildi, starf þeirra hefur væntanlega í framtíðinni aukið gildi fyrir heimsbyggðina, þá þurfum við að gæta þess að taka eðlilega á ákvörðunum sem horfa í þessa átt sem er tilefni fyrirspurnarinnar.