Alþjóðleg friðarvika Sameinuðu þjóðanna
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegur forseti. Að gefnu tilefni mun ég að sjálfsögðu leita eftir upplýsingum um það hvers vegna þessi ályktun Sameinuðu þjóðanna barst ekki rétta boðleið til menntmrn. sem hefði átt að bera ábyrgð á framkvæmd og koma þeim upplýsingum á framfæri við hv. fyrirspyrjanda.