Fyrirspyrjandi (Sigríður Lillý Baldursdóttir):
Virðulegi forseti. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir 3,75 nýjum stöðum við Landspítalann vegna fyrirhugaðra glasafrjóvgana þar. Vegna þessa og orðróms um að nú eigi að hefjast mjög fljótlega glasafrjóvganir á Landspítalanum vil ég bera fram eftirfarandi fsp. til hæstv. heilbrrh.:
,,1. Hvenær er áætlað að fyrstu glasafrjóvganirnar verði framkvæmdar hér á landi og hve langt á veg er undirbúningurinn vegna þeirra kominn?
2. Hvaða fagaðilar verða ráðnir til starfa við Landspítalann vegna glasafrjóvgana?
3. Má búast við að Tryggingastofnun ríkisins hætti greiðslum til þeirra kvenna sem kjósa að fara utan í glasafrjóvgun í stað þess að þiggja hana hér, og ef svo verður, þá hvenær?
4. Verður tilkoma glasafrjóvgana hér á landi til þess að konur þurfi að bera einhvern hluta af kostnaði við meðferðina?``