Ásgeir Hannes Eiríksson:
Hæstv. forseti. Ég fagna þessari fsp. og svarinu. Í svarinu kemur fram að það er enn þá nokkuð langt í land með að við getum fullnægt eftirspurn hér heima. Ég tel að þetta sé mikið og brýnt verkefni fyrir okkur. Þarna erum við að fást við líf. Það á að vera æðsta skylda Alþingis að hugsa um lífið. Okkur veitir ekki af auknu lífi hér á landi og sé þetta spurning um peninga, hver eigi að bera kostnaðinn, þá legg ég til að að sama skapi verði þeir sem nota sér fóstureyðingar látnir greiða hluta af þeirri aðgerð því að þar er ekki um læknisaðgerð að ræða og lýtur síst að því að fjölga Íslendingum og auka lífið. Ef við eigum að velja á milli hvort á að borga fyrir glasafrjóvganir eða ekki, þá bendi ég þarna á lið sem mætti spara í staðinn.