Glasafrjóvganir á Landspítalanum
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Það eru aðeins tvær athugasemdir vegna seinni ræðu hv. fyrirspyrjanda. Það var varðandi þann fjölda einstaklinga sem mundu geta komist í meðferð á Landspítalanum. Þar sagði ég: á næsta ári, þ.e. 40--50 konur gætu komist í meðferð á Landspítalanum á næsta ári vegna þess að við gerum ekki ráð fyrir að geta hafið þar meðferð fyrr en liðið er á árið, alla vega ekki fyrr en undir vor og kannski ekki fyrr en síðari hluta árs, í ágúst eða september, og þar af leiðandi ekki hægt að sinna þeim fjölda, a.m.k. verði hann sambærilegur við það sem verið hefur á seinustu árum, þá er ekki hægt að sinna honum öllum hér á næsta ári. En ég vonast til þess að ef starfsemin kemst af stað með eðlilegum hætti, þó ekki verði fyrr en síðari hluta næsta árs, þá sé hægt að veita þessa meðferð að mestu eða öllu leyti hér á landi á árinu 1991. Ég vildi aðeins árétta þetta og svo að sjálfsögðu taka undir ábendingar fyrirspyrjanda um félagslega ráðgjöf sem vafalaust er mikilvægt að þarna sé einnig fyrir hendi. Reyndar virðist vera svolítið svigrúm, samkvæmt þeim upplýsingum sem fram koma í fjárlagafrv., til þess að veita slíka þjónustu, en ella að hún falli undir þá félagsráðgjöf sem nú þegar er veitt og er fyrir hendi á Landspítalanum.