Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég bendi á að það er ekki leiðin til þess að koma í veg fyrir áhrif rauðra khmera að styðja ríkisstjórn þar sem þeir eru öflugasti aðilinn. Ég vísa einnig til þess að það eru Bandaríkin í samvinnu við Kína sem halda úti þessu liði í Kambódíu fyrst og fremst og hafa beitt önnur ríki þrýstingi í þá átt, þar á meðal Ísland. Ég vil afhenda hæstv. utanrrh. hér grein úr Financial Times, þar sem fjallað er um þetta mál af Edward Mortimer nú í lok októbermánaðar og margt upplýst sem ég vildi sagt hafa um málið.