Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að vekja athygli á þessu alvarlega máli. Ég tel hér vera á ferðinni dæmi um þær hættur sem lítilli friðsamri þjóð geta verið búnar af því að láta flækja sig í hernaðarneti stórvelda. Þetta er einnig dæmi um andvaraleysi og e.t.v. líka skort á færni okkar og getu til að fylgjast í smáatriðum og nákvæmlega með útfærslu þessa hernaðarreksturs.
Það er mjög alvarlegt að hönnun og bygging jafnfyrirferðarmikilla mannvirkja eins og olíugeyma skuli geta átt sér stað á íslensku landsvæði, jafnvel þó uppi á fjalli sé, án vitundar og eftirlits íslenskra aðila og þá þeirra sem samkvæmt lögum eiga um málið að fjalla. Það er einnig mjög alvarlegt að íslenskum aðilum skuli ekki hafa gefist tækifæri til þess að prófa styrkleika og hæfni slíkra mannvirkja miðað við íslenskar aðstæður, t.d. veðurlag. Og það er einnig í þriðja lagi mjög alvarlegt að gerð þessara mannvirkja skuli ekki vera betri en svo að slík mengunarslys geti orðið. Það ber vitni um vanmat eða lélega gerð slíkra mannvirkja.
Hv. 4. þm. Vestf. minntist á mögulega mengun fiskimiða og vatnsbóla sem vissulega er alvarleg og það er enn óljóst hversu mikið magn af olíu hefur í raun lekið þarna út.
Ég þakka báðum ráðherrum fyrir svör þeirra. Ég held að það sé mjög mikilvægt að Alþingi og þjóðin fái að fylgjast með niðurstöðum þeirra rannsókna sem gerðar verða. Þetta hvetji menn til árvekni og verði þeim víti til varnaðar að blanda sér ekki inn í slíkan hernaðarrekstur í framtíðinni og draga sig frekar út úr honum.