Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni vil ég lýsa þeirri skoðun minni að það er enginn búnaður svo tæknilega fullkominn að hann geti út af fyrir sig staðist það ef glópar fara fram með fyrirhyggjuleysi af þessu tagi. Þá er sama hversu traustur búnaðurinn er.
Það er ástæða til þess að geta þess sérstaklega að við hönnun á þessum olíugeymi var það haft í huga að umfang hans væri nægilegt til þess að birgðir entust í marga mánuði með tilliti til þess að erfitt er um olíuflutninga að vetrarlagi og var þess vegna ráðgert að olíugeymarnir yrðu fylltir síðla sumars eða snemma að hausti en ekki á vetrardögum.
Vegna aðildar íslenskra stofnana er líka rétt að taka það fram að teikningar af ratsjárstöðvunum, þar með töldum olíukerfum, voru lagðar fyrir skipulags- og byggingarnefnd varnarsvæða 1986, leitað umsagnar heilbrigðiseftirlits á varnarsvæðum og Vinnueftirlits ríkisins. Að teknu tilliti til athugasemda þessara aðila voru teikningarnar samþykktar 1987. Álits Siglingamálastofnunar var ekki leitað um teikningarnar þá. Hins vegar hefur ávallt verið ráðgert að heilbrigðisfulltrúi varnarsvæða og Siglingamálastofnun gerðu úttekt á geymunum og olíukerfinu áður en starfsemin hæfist til þess að tryggja að þær uppfylltu ýtrustu öryggiskröfur. En vegna þess að varnarmálaskrifstofu voru ekki kunn nein slík áform um að fylla geymana meðan stöðin er mannlaus og áður en úttekt hafði farið fram henti þetta slys. Það er þegar búið að lýsa því yfir að eftirlit með þessu er framvegis í höndum Ratsjárstofnunar og varnarmálaskrifstofu.