Vinnubrögð við undirbúning virðisaukaskatts
Föstudaginn 24. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur óskað eftir leyfi til að hefja utandagskrárumræðu um efni sem hann kallar vinnubrögð við undirbúning virðisaukaskatts. Forseti hefur leyft umræðuna sem fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga og skal því ekki standa lengur en í hálftíma.