Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
Virðulegi forseti. Ég skal ekki draga dul á það hér úr þessum ræðustóli að ég hef aldrei verið neinn vinur virðisaukaskattsins. Ég hef enn þá mínar efasemdir um að virðisaukaskattur sé heppilegt skattform fyrir þetta fámenna og litla þjóðfélag og það atvinnulíf sem hér er, þau litlu fyrirtæki sem eru undirstaða þess. Virðisaukaskattur var á sínum tíma fundinn upp af Frökkum sem eru taldir einhverjir mestu skriffinnar í Evrópu. Skattkerfið er dæmigert fyrir þá hugsun, þetta er skriffinnskukerfi. Hins vegar skal ég ekki hlaupast undan þeirri ábyrgð að ég stóð að því þegar við vorum að ganga frá samningum um stjórnarsáttmála við myndun nýrrar ríkisstjórnar í byrjun september að gert var samkomulag um að virðisaukaskattur skyldi tekinn upp frá nk. áramótum og hann yrði í einu þrepi á smásölustigi en sérstakt lægra skattþrep yrði á framleiðslustigi á vissum innlendum matvælum sem yrði náð í gegnum endurgreiðslu. Ég er ekkert ánægður með þessa niðurstöðu en um það varð samkomulag og við það samkomulag verður að sjálfsögðu staðið. Hins vegar höfum við lýst því yfir að við munum halda þeirri baráttu áfram að berjast fyrir tveimur þrepum í virðisaukaskatti frekar en gegn skattinum vegna þess að ég geri mér það ljóst að mikill meiri hluti þingmanna er fylgjandi því að taka upp virðisaukaskatt. Enn fremur virðist svo vera að atvinnulífið vilji í stórum dráttum fá virðisaukaskatt. Fulltrúar atvinnulífsins hafa margoft lýst því yfir að þeir telja óhjákvæmilegt að á Íslandi verði virðisaukaskattur eins og í nálægum samkeppnislöndum. Þess vegna munum við ekki berjast gegn virðisaukaskattinum sem slíkum en við munum hins vegar berjast fyrir því að með tíð og tíma verði tvö skattþrep í virðisaukaskatti, annað skattþrep lægra sem nái yfir matvæli og helstu lífsnauðsynjar, menningarstarfsemi hvers konar og hugsanlega yfir þjónustu sem nú er sett í hátt skattþrep, svo sem eins og þjónusta lögfræðinga, endurskoðenda og verkfræðinga. En eins og ég gat um áðan þá var gert samkomulag um þetta við myndun stjórnarinnar og við það mun Borgarafl. að sjálfsögðu standa. Svo vil ég minna á það þegar menn eru að tala um einhvern hæsta virðisaukaskatt í heimi að í fjölmörgum Evrópulöndum eru virðisaukaskattsþrep langt yfir 30%, m.a. í Frakklandi, Belgíu og á Ítalíu. Þar eru virðisaukaskattsþrep allt upp í 37% á vissum vöruflokkum þannig að það er auðvitað alveg af og frá að við séum að slá einhver met hér. Ég vil minna sjálfstæðismenn á að það var fyrir þeirra tilstilli að tekjur ríkisins af tollum voru nánast afnumdar. Og svo reka menn upp stór augu þegar ríkið verður að færa tekjuöflunina yfir á aðra skattheimtu.