Löggæsla í Reykjavík
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Aðeins nokkur orð í þessari umræðu. Það er auðvitað nauðsynlegt að styðja löggæsluna í landinu og tryggja að hún geti sinnt mikilvægu hlutverki sínu. Okkur hafa borist þau skilaboð fyrir löngu hingað inn á Alþingi að margar deildir lögreglunnar eru vanbúnar, bæði hvað varðar mannafla og tækjakost, til þess að gegna lágmarks skyldustörfum, hvað þá frekari rannsóknum eða fyrirbyggjandi starfi. Má sem dæmi nefna fíkniefnalögregluna, en fyrir þinginu liggja nú a.m.k. tvær fsp. varðandi störf hennar.
    Ég vildi þó einnig beina sjónum manna að öðrum þáttum þessa máls sem ég tel sýnu mikilvægari, en þeir eru að reyna að greina ástæður þess aukna ofbeldis sem við verðum vör við í samfélagi okkar. Reyna að skilja og greina þá þætti sem þar liggja að baki, bæði félagslega og aðra og bæta þar úr. Og þá kynni svo að fara að ekki væri jafnmikil nauðsyn að styrkja löggæsluna ef tækist að beita fyrirbyggjandi starfi til að koma í veg fyrir það að afbrot verði framin.