Löggæsla í Reykjavík
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Alexander Stefánsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil alls ekki draga úr því sem hér hefur komið fram um þetta stóra og mikla vandamál í sambandi við löggæslu hér á landi. Það er alveg augljóst af þeirri yfirferð sem fer nú fram í fjvn. að það er eiginlega sama hvar við berum niður í lögregluumdæmum landsins, alls staðar eru kvartanir um það sama. Þ.e. að sá samdráttur sem hefur verið fyrirskipaður við meðferð þessara mála kemur mjög hart niður á almennri löggæslu. Ég held að það sé alveg óhætt fyrir hv. alþm. að gera sér grein fyrir því að ef á að bæta hér um þarf mjög háar fjárhæðir til viðbótar í fjárlög ríkisins til þess að þær komi að notum. Ég vil taka það sérstaklega fram að það hafa sennilega fá lögregluembætti í landinu gengið eins vel og myndarlega fram í því að endurskipuleggja löggæslustarfið eins og einmitt hérna hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Það er til fyrirmyndar, en það leiðir eigi að síður í ljós hvar veiku punktarnir eru í þessari starfsemi ef á að sinna þeirri gífurlegu aukningu á þörf fyrir almenna löggæslu sem fylgir okkar nútímaþjóðfélagi og hefur ekki dregið úr með síðustu aðgerðum Alþingis í sambandi við ýmsar lagasetningar sem eru komnar til framkvæmda svo að ekki sé meira sagt.
    En ég vil bara undirstrika að hér er sannarlega um stórt og mikið vandamál að ræða sem fjvn. er núna að vinna að og það er alveg augljóst að það verður að vinna hér gott og mikið starf.