Fyrirspurn um framfærsluvísitölu
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
    Virðulegi forseti. Ég tel að þessi ummæli hv. 5. þm. Vesturl. séu mjög óréttmæt vegna þess að ég er á þeirri skoðun að það svar sem var gefið og undirbúið af starfsfólki í Hagstofu Íslands hafi verið mjög vel unnið. Það er mjög ítarlegt og þar er óvenju ítarleg grein gerð fyrir sundurliðun framfærsluvísitölunnar eins og fram kemur í svarinu. Hins vegar er á það bent í svarinu að það gilda fastar reglur og viss lög sem koma í veg fyrir að hægt sé að svara í sumu þeim spurningum sem voru lagðar fram. M.a. er það talið alveg ófrávíkjanleg regla, sem ekki verður rofin, að gefa ekki upp hvaða vöruheiti og vörutegundir eru lagðar til grundvallar framfærsluvísitölu. Þetta er sú regla sem er viðhöfð hjá hagstofum allra landa þar sem framfærsluvísitölur eru reiknaðar með þessum hætti. Það er nánast alþjóðleg regla að það er hvergi upplýst um ákveðnar vörutegundir og vöruheiti, einfaldlega til þess að koma í veg fyrir að ákveðnir aðilar geti með beinum hætti haft áhrif á framfærsluvísitöluna með því að hækka eða lækka þær vörutegundir sem upplýst hefði verið að væru inni í framfærsluvísitölunni.