Fyrirspurn um framfærsluvísitölu
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Fyrsti liður þessarar fsp. hljóðaði svo:
    ,,Hvaða vörur, þjónusta og annað mynda framfærsluvísitöluna?
    Óskað er eftir nákvæmri sundurliðun þar sem fram kemur meðal annars:
    a. vörutegund,
    b. vöruheiti og framleiðandi,
    c. hversu lengi hver vara hefur verið í vísitölunni,
    d. hvaða vörur hafa fallið út úr útreikningi vísitölunnar síðastliðin 10 ár og hvaða nýjar vörur hafa verið teknar inn í vísitöluna á sama tímabili?``
    Engum af þessum liðum er svarað eins og hæstv. ráðherra var reyndar að segja hér í ræðu sinni rétt áðan. Í ljósi þess sem hann sagði hefði vitanlega ekki átt að heimila þessa fsp. en hún var heimiluð og þá er það minn skilningur að það eigi að koma svar við henni.
    Ég vil geta þess að þegar ég lagði þessa fsp. fram kom hæstv. hagstofuráðherra að máli við mig og þakkaði sérstaklega fyrir hana vegna þess að þetta væri einmitt mál sem hann hefði sjálfur ætlað sér að taka upp.
    Annar liður þessarar fsp. orðast svo: ,,Hvert er vægi hvers liðar fyrir sig í vísitölunni?`` Með því að fá ekki svar við fyrsta liðnum, þá er þessi spurning náttúrlega þar með fallin út, dauð og ónýt. Það kemur reyndar fram í svari hæstv. ráðherra þar sem hann segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Þannig eru aldrei birtar upplýsingar um vörutegundir, vöruheiti eða framleiðendur né um vægi einstakra tegunda vöru eða þjónustu í vísitölunni.`` Þetta sagði hæstv. ráðherra hér áðan. En þá segi ég aftur, þá hefði alls ekki átt að heimila þessa fsp. Það eina sem þetta svar gefur er þetta: Farðu inn og lestu Hagtíðindi, lestu Hagtölur mánaðarins. Sem dæmi um þessi frábæru vinnubrögð þessarar stofnunar rifjaði ég upp það sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson sagði um daginn þegar hann talaði um ráðherra Hagstofu eða jafnvel ráðherra spaugstofu vegna þess að það svar sem hér er gefið varðandi útreikning vísitölunnar hlýtur að koma frá spaugstofunni. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar og athugaðar er vísitalan reiknuð út í tölvu``, það er mjög mikilvægt að vita þetta, og áfram: ,,og allar vinnutöflur skrifaðar út á pappír.``
    Maður spyr sjálfan sig: Hvað er starfsfólkið að gera? Það hljóta allir að vita að það er skrifað út á pappír, varla er það slegið út á stein.
    Hæstv. forseti. Svarið frá hæstv. hagstofuráðherra er ófullnægjandi og ég ítreka ósk mína um það að forseti leiti úrræða til þess að fsp. verði svarað.