Ragnhildur Helgadóttir:
    Frú forseti. Það er ekki að ástæðulausu að það málefni sem við fjöllum nú um hefur verið ítarlega rætt hér á Alþingi. Umræðurnar hafa verið málefnalegar og leitt í ljós sitthvað sem búið hefur í huga hv. þm. um þetta efni, en e.t.v. hefðu umræðurnar ekki dregist svo á langinn ef fyrir þinginu hefði legið skýr og greinileg till. til þál. um umboð og erindi til handa hæstv. utanrrh.
    Ég leyfi mér að vitna til lítillar greinar í tímariti Norðurlandaráðs, í seinasta hefti. Það fjallar um Norðurlönd og Evrópu. Þar er fyrirsögn sem hljóðar svo í íslenskri þýðingu: ,,Ákvörðun um umboð til viðræðna í desember``. Ég þýði hér tvö orð með einu. Orðin ,,fuldmagt`` og ,,mandat`` þýði ég einu orði umboð, en nokkur merkingarmunur er á þessum orðum. Það liggur alveg ljóst fyrir að frændþjóðir okkar á Norðurlöndum ganga út frá því sem gefnu að þingin samþykki umboð til handa ráðherrum sínum.
    Vissulega er ég ekki með þessum orðum að vanþakka þá skýrslu sem hér liggur fyrir, fjarri fer því, því að hún greinir frá góðu, mikilsverðu og vandasömu verki sem unnið hefur verið og hefur sýnt í raun og veru ótrúlegan árangur á þeim skamma tíma sem til stefnu hefur verið.
    Ég held, sannast sagna, að eftir þær yfirlýsingar sem við höfum heyrt frá ýmsum stuðningsmönnum hæstv. ríkisstjórnar og talsmönnum í utanríkismálum sé það enn ljósara en áður að hæstv. utanrrh. er brýn nauðsyn að hafa í höndum formlegt umboð þegar hann gengur til þeirra viðræðna sem fram fara nú síðar í desember. Það er auðvitað engin staða fyrir utanrrh. eins lands, og þá þess heldur þegar sá hinn sami hæstv. ráðherra er formaður ráðherranefndar EFTA, að hafa ekki umboð þjóðþings síns í höndunum. Upplýsingar sem opinberar eru
sýna að engin samstaða er í ríkisstjórninni um þetta mál. Þá er það minnsta sem hæstv. ráðherra getur gert kröfu um að það sé ljóst hvert Alþingi vill stefna. Og ég væri satt að segja meira en lítið undrandi ef Alþingi gæfi ekki slíkt umboð. En eins og málin standa nú sýnist mér framhald þessara mála stefna í mikla tvísýnu, því verði teflt í mikla tvísýnu, ef samningsstaða og viðræðustaða hæstv. ráðherra verður svo veik sem verða mun þegar umboðið skortir. Það er algjörlega ljóst. Og enn eru það rök með því að fá slíkt umboð að við þurfum sérstaklega að semja um okkar mál. Við þurfum að halda áfram að vinna skilning á okkar sérstöðu í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir og ekki einungis að vinna skilning, heldur að vinna úr þeim skilningi þannig að hann geti birst í framkvæmdum og nýjum samningum. Þetta er því mikið áhersluatriði, eins og fram hefur komið hér áður, af hálfu þeirra sjálfstæðismanna sem talað hafa hér í umræðum, enda er þetta stefna okkar þingflokks. Ég gat ekki stillt mig um að reifa enn þessar röksemdir sem ég tel að geri þetta algjörlega óhjákvæmilegt.
    Það er öðruvísi umhorfs í Evrópu nú en var fyrir

ári síðan. Um nokkurt árabil hefur þungamiðja pólitískra atburða í álfunni verið í Brussel eða einhverri þeirri borg þar sem atburðir á sviði Evrópubandalagsins hafa orðið, þar sem ákvarðanir hafa verið teknar og unnið í framhaldi af þeim ákvörðunum. Það sem nú hefur hins vegar gerst er að þungamiðja þessara atburða hefur færst austur fyrir járntjaldið svonefnda. Þessir atburðir hafa breytt ástandinu svo að nú hikar maður dálítið við að segja járntjaldið, segir aðeins járntjaldið svonefnda, og það er vegna þess að margar þær þjóðir sem vissulega hafa verið í járngreipum sósíalismans og kommúnismans eystra í Evrópu keppast við að sannfæra okkur um það að nú sé járntjaldið sums staðar fallið og óðum að verða gisnara þar sem það enn hangir uppi. Þær frelsisöldur sem nú fara um Austur-Evrópulöndin byggjast fyrst og fremst á því að þetta fólk hefur skort það sem við höfum í Vestur-Evrópu. Það hefur skort frelsið og mannréttindin, lýðræðið, og það hefur ekki búið við sams konar réttarríki og við teljum okkur gera hér í Vestur-Evrópu. Það hefur búið við bág kjör upp til hópa.
    Farvegur fyrir lýðræðissókn þessara ríkja og farvegur fyrir samstarf þeirra með Evrópuríkjum sem búa við lýðræði er Evrópuráðið. Það varð hæstv. utanrrh. var við nú nýlega þegar Ungverjar sóttu um aðild að Evrópuráðinu og áður hafði það legið fyrir og verið ljóst að sendinefndir nokkurra Austur-Evrópuríkja og þar á meðal Sovétríkjanna áttu sæti á þingi Evrópuráðsins sem áheyrnarfulltrúar nú í haust í fyrsta sinn í sögunni. Þetta eitt út af fyrir sig sannfærir okkur um það að Evrópa er meira en sú Evrópa sem stofnaði samtök um 1950 til verndar lýðræði, mannréttindum og réttarríki. Núna eru að koma ný lönd í þessi samtök. Ný ríki vilja ganga til liðs við þennan hóp og það er vitanlega meira fagnaðarefni en við höfum haft ráðrúm til að átta okkur á, eða svo segir mér hugur um. Ég held með öðrum orðum að við lifum nú merkilegri tíma en upp hafa runnið hér í álfu um langan aldur. Hins vegar er það auðvitað ljóst að ekki er allt fengið með þeim hreyfingum sem orðið hafa í löndum Austur-Evrópu og enn er sitthvað þar sem menn eiga undir högg að sækja til þess að tryggja frelsi sitt, bæta stjórnskipan, bæta efnahag ríkjanna og ekki síst kjör almennings.
    Utanríkisráðherrar Póllands, Ungverjalands og Tékkóslóvakíu sem áttu
viðræður við stjórnmálanefnd og ráðherranefnd Evrópuráðsins nú fyrir örfáum dögum síðan sögðu það fullum fetum að þeir vildu ganga til samstarfs við samtök lýðræðisríkjanna um mannréttindi í Evrópu, en þeir gerðu sér ljóst að áður en til þess gæti komið þyrftu þeir að koma á ýmsum umbótum í löggjöf ríkja sinna og þeir þyrftu að vinna að því að breyta efnahagskerfi þessara ríkja alveg frá rótum. Þeir sögðu það fullum fetum að þeir vildu koma á markaðskerfi, þeir vildu koma á skiptingu valdsins og koma á kerfi sem virti einstaklingana og rétt þeirra, þeir vildu auka lýðræði í eign fyrirtækja og koma á samstarfi við

erlenda aðila um eign fyrirtækja í löndunum. Ég nefni þessi atriði sérstaklega til þess að sýna fram á og minna á það að þó að hreyfingar þær sem nú eru og okkur berast fregnir af á hverjum degi í Austur-Evrópu séu fyrst og fremst byggðar á hugmyndafræðilegum grunni, á þránni til frelsis og mannréttinda er þarna ekki síður um að ræða sókn til betri efnahags í ríkjunum og betri kjara fyrir borgara þeirra. Þess vegna er það deginum ljósara að allt þetta breytir að öllum líkindum áherslum hjá Evrópubandalaginu. Engu að síður er það rétt að við þurfum sannarlega að leggja áherslu á það samstarf sem fer fram innan EFTA og viðræðurnar milli EFTA og Evrópubandalagsins.
    Ég get ekki neitað því að ég varð töluvert efins í janúarmánuði þegar Jacques Delors flutti hina frægu ræðu sína, sem setti þetta ferli allt af stað eða a.m.k. jók hraða þess mjög, og sagði að hann vildi standa að viðræðunum við EFTA á grundvelli Lúxemborgaryfirlýsingarinnar frá 1984, en svo bætti hann við: Til þess þarf EFTA að breyta innra skipulagi sínu, þarf að breyta sínu kerfi og síðan getum við komið á viðræðum sem byggja á tveimur stoðum eins og það hefur verið orðað. Mér leist svo á þegar ég heyrði þetta fyrst að þarna væri forustumaður Evrópubandalagsins að segja EFTA fyrir um það hvernig það ætti að haga sínu skrifstofuhaldi eða haga sínu innra starfi og mér þótti það tæpast viðeigandi, enda var ég heldur mótfallin því að tvö sams konar kerfi væru byggð upp í Evrópu með álíka skrifstofubákni. Ég gat ekki alveg séð rökin fyrir því og ef það væri ætlunin að búa til sams konar kerfi væri miklu einfaldara að tengjast Evrópubandalaginu beint. Ég hef hins vegar sannfærst um það og séð það í meðferð þessa máls að EFTA hefur tekist að halda sinni starfsemi innan miklu þrengri marka ef ég má svo segja. Þau samtök hafa ekki farið fram yfir þau mörk sem ég tel að nauðsynleg séu til þess að halda uppi því samstarfi og mér virðist það sannarlega mjög skynsamleg aðferð sem gripið hefur verið til, að halda áfram viðræðunum við Evrópubandalagið í þeim tilgangi að koma á evrópsku efnahagssvæði.
    Ég sé, frú forseti, að klukkan er alveg að verða hálffimm. Það hefðu verið nokkur atriði sem mig langaði til að víkja að. Ég geri mér grein fyrir því að það þarf að fresta umræðunni mjög fljótlega og því skal ég stytta mál mitt. Mig langaði til að vekja sérstaklega athygli á því að þó að ljóst sé að unnið hefur verið með undraverðum hraða af hálfu þeirra embættismanna sem hafa undirbúið þessar flóknu viðræður á þeim fjórum sviðum sem ætlað er að stefna að meira frelsi á og einnig í jaðarmálefnunum er samt mjög mikið verk eftir. Og mér virðist enn þá vera afar óljóst hvert umræðan t.d. um félagsmálasamstarfið mun leiða, með hvaða hætti verður hægt að ganga þannig frá félagsmálasáttmálanum að unnt sé að koma ákvæðum hans með virkum hætti út í löggjöf landanna. Um það vildi ég gjarnan fá tækifæri til að ræða síðar og segja hins vegar aðeins að ég tel að það sem við þurfum að

gera núna sé að fá hér á borðin þáltill. um umboð til handa hæstv. utanrrh., og gefa honum það umboð. Jafnframt vonast ég til að unnt verði að samþykkja aðra tillögu sem ég veit ekki hvort kemur inn á borð þingmanna en hún er a.m.k. komin fram í utanrmn. Hún var lögð fram þar í morgun. Fulltrúar Sjálfstfl. lögðu fram tillögu í utanrmn. þess eðlis að ... ( Forseti: Má ég spyrja hv. þm. hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni því þá verð ég að biðja hv. þm. að fresta ræðunni því að hér verða nú að hefjast utandagskrárumræður.) Já, ég mun taka því boði hæstv. forseta, en vill ekki hæstv. forseti leyfa mér rétt að skýra frá því að í utanrmn. lögðu þingmenn Sjálfstfl. fram í morgun tillögu um að beina því til hæstv. utanrrh. og forsrh. að taka upp viðræður við ráðamenn Evrópubandalagsins, þ.e. ráðherra Evrópubandalagsins, a.m.k. undirbúa þær viðræður, um að fallið verði frá tollum á saltfiski og nokkrum öðrum afurðum þannig að þeir tollar verði samanlagt ekki hlutfallslega hærri en þeir voru þegar gengið var frá bókun 6. Tillagan er um þetta atriði en ekki tvíhliða viðræður sem taki á öllum samstarfsefnum heldur einungis þessu séríslenska viðfangsefni.
    Ég þakka, frú forseti, og bið velvirðingar á að ég skýrði frá þessari tillögu, en ég taldi rangt að byrja á því að segja að lögð hefði verið fram tillaga og segja svo ekkert um hvað hún var.