Gildistaka virðisaukaskatts
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegur forseti. Undirbúningur að gildistöku virðisaukaskatts hefur verið mjög víðtækur og á undanförnum vikum hafa verið gefnar út þær reglugerðir sem brýnastar eru í þessum efnum og næstu daga verða gefnar út þær reglugerðir til viðbótar sem einkanlega hefur verið kallað á í þessum efnum. Það er rétt að hv. alþm. átti sig á því að í þessu sambandi erum við mun fyrr á ferðinni með margar af þessum reglugerðum en t.d. Danir voru þegar þessi skattkerfisbreyting átti sér stað hjá þeim. Á undanförnum vikum hafa einnig átt sér stað viðræður við fjölmarga forustumenn í atvinnulífi. Það hafa átt sér stað viðræður við mikinn fjölda forsvarsmanna fyrirtækja og ég hef einnig átt viðræður við fulltrúa Vinnuveitendasambands Íslands og Verslunarráðs Íslands.
    Ég tel alveg einsýnt eftir allar þessar viðræður og athuganir að það er ekkert því til fyrirstöðu að virðisaukaskattur geti tekið hér gildi um næstu áramót. Það er hins vegar alkunna og þarf ekki að hafa um það langt mál að á undanförnum árum hafa verið ólíkar skoðanir um það hvort virðisaukaskatturinn ætti að vera í einu þrepi eða fleirum. Þar hafa menn sérstaklega rætt það hvort virðisaukaskattur á matvæli, og þó einkum innlend matvæli, væri í lægra þrepi en almennt væri í virðisaukaskattinum.
    Það sem hefur verið að gerast á undanförnum missirum í þeim efnum er að stjórnmálaflokkar sem áður voru eindregið fylgjandi því að virðisaukaskattur væri í einu þrepi, eins og t.d. Sjálfstfl., hafa tekið upp aðra stefnu. Sjálfstfl. tók upp þá stefnu fyrr á þessu ári að vilja virðisaukaskatt í tveimur þrepum og aðrir stjórnmálaflokkar í landinu hafa einnig verið að skoða þetta mál sem er ósköp eðlilegt vegna þess að skatturinn er með ýmsum hætti í fjölmörgum löndum.
    Það er fyrst núna sem það liggur fyrir að innan ríkisstjórnarinnar er samstaða um að vilja skoða virðisaukaskatt í tveimur þrepum með lægra þrepi á matvælum. Ég mun að sjálfsögðu leggja fram tillögur í þeim efnum en tel skynsamlegast að fara í málið með þeim hætti að um áramót taki gildi sá virðisaukaskattur sem við höfum stefnt að í þeirri mynd sem stjórnarflokkarnir sömdu um sín á milli í sumar. Það mun hafa í för með sér verulega lækkun á algengum innlendum matvælum um næstu áramót og síðan verði tekinn upp virðisaukaskattur í tveimur þrepum með lægra þrepi á matvælum síðar á árinu eða í síðasta lagi um næstu áramót, áramótin 1990--1991.
    Þetta eru þær tillögur og þær aðferðir sem ég tel skynsamlegast að verði fylgt í þessu máli.