Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Til eru þeir menn, margir þeirra hér inni í þessum hv. sal, sem telja sig lengi hafa haft alslemmu á spilum sínum, nefnilega með því að spila út stóra trompinu um að unnt sé að lækka matvælaverð á Íslandi með því að taka upp virðisaukaskatt í tveimur þrepum. Nú er komið að því að þeir menn sýni sín spil og það komi á daginn hvort þetta eru virkilega tromp eða bara tómir hundar. Málið stendur svona: Virðisaukaskattur á að taka gildi um áramót. Þeir sem komu honum á voru sá sem hér stendur, með dyggum stuðningi hv. 1. þm. Suðurl., formanns Sjálfstfl., og formanns Framsfl., 22%, því miður með helst til miklum undanþágum.
Þessi ríkisstjórn hafði gert með sér samkomulag um að virðisaukaskattur skyldi að vísu taka gildi um áramót, en við höfðum samið um ákveðnar breytingar á honum í málefnasáttmála, við fjárlagasmíð og við undirbúning frumvarps. Breytingin skyldi verða sú að til þess að tryggja skattframkvæmdina skyldi hann vera í einu þrepi, en til þess að mæta sjónarmiðum um lækkun matvælaverðs skyldi endurgreitt sem svaraði ígildi 13% skatts á þýðingarmestu
matvæli. Fjmrn. hefur metið það svo að þetta mundi leiða til 9--10% verðlækkunar á mjólk, keti og fleiri vörum.
Nú hefur það gerst að stofnanir samstarfsflokka okkar alþýðuflokksmanna, landsfundur Alþb., miðstjórnarfundur Framsfl., hafa ályktað um að þeir vilji fara að dæmi Sjálfstfl. og taka upp tveggja þrepa skatt, sem og hafa ýmsir forustumenn lýst því yfir að þeir vilji fara þessa leið. Niðurstaðan er sú að það er ekki lengur þingmeirihluti að mínu mati fyrir því samkomulagi sem upphaflega var gert.
Það sem þingflokkur Alþfl. hefur þess vegna gert er eftirfarandi:
Við segjum: Við erum reiðubúnir að skoða, jákvæðum huga og vandlega, tillögur sem kunna að verða lagðar fram um tveggja þrepa virðisaukaskatt sem fullnægir eftirtöldum skilyrðum: Að lækka matvælaverð, að tryggja að ekki verði meiri halli á ríkissjóði án þess að grípa til meiri tekjuöflunar.
Við erum búnir að fara yfir þessi dæmi og þetta er búið að vera helsta deilumál í íslenskum þjóðmálum núna á þriðja ár. Dæmin eru þekkt, og hv. fyrirspyrjandi þekkir þau mætavel, líka úr fyrri tilveru sinni sem fjmrh., og dæmin eru svona: Það er vissulega ekkert sem kemur í veg fyrir það að við setjum tveggja þrepa virðisaukaskatt en afleiðingarnar eru þessar:
Ríkissjóður tapar við það umtalsverðum tekjum. Ef þið setjið matinn og menninguna í 13% þrep þá er tapið 3--4 milljarðar. Það þýðir í öðru lagi að það er minna fé til þess að greiða niður matvælaverð. Það þýðir í þriðja lagi að þetta minna fé sem eftir er til þess að greiða niður matvælaverð kemur á breiðari stofn þannig að það munar minna um það og afleiðingarnar mundu t.d. verða þær að þær matvörur sem við greiddum niður þegar því var logið upp að
hér væri settur á matarskattur, þær matvörur sem við höfum greitt niður að fullu, mundu við þessa breytingu hækka í verði.
Við munum að sjálfsögðu halda áfram þessum umræðum en fyrir hönd míns flokks segi ég: Það hefur aldrei verið Alþfl. trúaratriði að ekki mætti koma með tveggja þrepa virðisaukaskatt ef þeir sem það styðja geta sýnt fram á að það leiði til lækkunar á matvöruverði, að það kosti ekki meiri skattlagningu til meiri niðurgreiðslna og í þriðja lagi að það tryggi þá framkvæmd í skattakerfinu í virðisaukaskatti að það verði ekki aftur opnaðar allar gáttir til skattundandráttar á þeim skattpeningum sem almenningur í landinu borgar yfir búðarborðið vegna þess að það var undirrótin, barátta okkar gegn þessum skattundandrætti.
Ef spurt er: Hvað tekur nú við? er mitt svar þetta, mjög stuttlega, virðulegi forseti:
Ég met það svo að ekki sé meiri hluti fyrir þeim tillögum sem samkomulag varð um innan ríkisstjórnarinnar. Ég geri þess vegna ráð fyrir að flutt verði frv. til laga um frestun á gildistökuákvæði þeirra virðisaukaskattslaga sem ella hefðu komið í gildi um áramót. Ég met það svo, og þetta þarf þjóðin að vita, að söluskattskerfið, óbreytt, slíkt sem það er, hljóti þess vegna að vera í gildi eitthvað fram á næsta ár. Hversu lengi get ég ekki svarað. Það ræðst af því hvenær menn hafa komið með tillögur sem fullnægja þessum skilyrðum: Tveggja þrepa virðisaukaskattur, undanþágur eða lægra þrep fyrir allan mat og menningu, lægra matvöruverð án þess að raska forsendum fjárlaga. Ef einhver getur komið með slíkt frv. munum við glaðir og heils hugar styðja það.