Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Það er greinilega ekki vanþörf að halda áfram þeirri umræðu sem hér fór fram á föstudaginn, um virðisaukaskattinn. Það er ljóst að málið er enn óuppgert og enn óákveðið og ekki vanþörf á að hafa stjórnarandstöðuna með í ráðum. Yfir málinu öllu hvílir bæði órói og ruglingur.
Best færi á að fella niður virðisaukaskattinn. Að öðrum kosti væri betra að bíða og fresta, því þeim mun lengur sem er frestað þeim mun meir vitkast menn greinilega og sjá að það er ekki hægt að leggja einn hæsta virðisaukaskatt í Evrópu eða 26% á matvæli sem eru þegar dýrari hér á landi en víðast hvar annars staðar. Það kemur auðvitað ekki til greina.
En mig langar til að inna svolítið betur eftir þessu loforði hæstv. utanrrh. Mér fannst málflutningur hans með endemum hér. Hann kemur hér upp fyrst til þess að segja að það sé ekki hægt að framkvæma það sem flokksstjórn Alþfl. síðan lofar að gera. Með ákveðnum skilyrðum, þýðir það það að ef ekki verður staðið við þessi skilyrði þá gildi ekki loforð Alþfl. ef síðar kemur í ljós að það reynist ekki eins og hæstv. utanrrh. greindi frá? Mun Alþfl. þá ekki standa við þessa samþykkt? Og samþykkir hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. slíkt loforð?