Þorsteinn Pálsson (um þingsköp) :
Frú forseti. Ég þakka fyrir það að fá tækifæri til að gera hér athugasemd um þingsköp. Ég vil minna hæstv. forsrh. á að það segir í inngangi að skýrslu hæstv. utanrrh. um þessi mál að á fundi ráðherra Evrópubandalagsins og Fríverslunarsamtakanna 19. des. nk. eigi að taka ákvörðun um formlegar samningaviðræður. Og auðvitað er verið að skuldbinda Ísland til þátttöku í formlegum samningaviðræðum á þessum fundi samkvæmt orðalagi þessarar skýrslu. Það er þetta sem ég undrast að hæstv. forsrh. skuli ekki gera sér grein fyrir og það er ljóst að það er engin meirihlutaskoðun hér í þinginu enn sem komið er um það hvernig á þessu eigi að taka. Þess vegna er krafan um formlega þál. sett hér fram.