Fiskveiðasjóður Íslands
Þriðjudaginn 28. nóvember 1989


     Karvel Pálmason:
    Virðulegi forseti. Bara örstutt. Út af því sem hæstv. ráðherra sagði, þá skildi ég seinni ræðuna á þann veg að hér væri verið að ætlast til að Fiskveiðasjóður hefði á sínum höndum það sem gert hefur verið í Fiskimálasjóði án þess að hann fengi meiri tekjur, hafi ég skilið rétt, yfirfæra starfsemi Fiskimálasjóðs til Fiskveiðasjóðs án þess að það ætti að skapa honum neinar nýjar tekjur nema þá ef til þess kæmi, sem menn eru að tala um hér, að skapa honum sérstakar tekjur þegar fram í sækti. Þetta taldi ég mig skilja á þennan veg. Eina breytingin er sú að það er verið að færa þessi verkefni yfir án þess að verið sé að breyta einu eða neinu í skattlagningu frá því sem nú er.
    Varðandi það sem hv. 4. þm. Vestf. sagði, þá átti ég nú ekki von á því að þessi hv. þm., fyrrverandi forseti sameinaðs Alþingis, væri búinn að gleyma því að í stjórnarskrá Íslands er til ákvæði sem nánast skyldar þm. til þess að taka afstöðu og greiða atkvæði samkvæmt eigin sannfæringu burtséð frá flokkasjónarmiðum. Og þetta er ástæða til þess að minna þennan hv. þm. á, svo og ýmsa aðra. Mín afstaða hefur legið fyrir gagnvart þessari hæstv. ríkisstjórn. Ég gerði grein fyrir því á flokksstjórnarfundi Alþfl. að ég mundi taka afstöðu til málefnanna hverju sinni eins og þau lægju fyrir. Þannig að ef menn vilja geta þeir haldið áfram að telja mig utan eða innan stjórnarliðsins. Það er sannfæringin í mínum huga sem ræður málum og það hélt ég að hv. þm. Þorvaldur Garðar vissi.