Sóttvarnalög
Þriðjudaginn 28. nóvember 1989


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til nýrra sóttvarnalaga sem flutt er á þskj. 196 og er 173. mál Ed. Um nokkurt skeið hefur það verið skoðun manna í heilbr.- og trmrn. að nauðsynlegt væri að endurskoða lagaákvæði um farsóttir og sóttvarnir og því skipaði ég nefnd í október 1988 sem fékk það verkefni að endurskoða sóttvarnalögin frá 1954, farsóttalög frá 1958 og ýmis sérlög um varnir gegn tilteknum smitsjúkdómum, svo sem berklavarnalög frá 1939, lög um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978, með síðari breytingum, og lög um varnir gegn holdsveiki frá síðustu aldamótum.
    Í nefndina voru skipaðir Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir, Haraldur Briem, sérfræðingur í smitsjúkdómum, Skúli Johnsen, borgarlæknir í Reykjavík, Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri í heilbrrn., og var hún ritari nefndarinnar, og Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri og var hann formaður nefndarinnar. Nefndin skilaði fullbúnu frv. ásamt fskj. í september sl. og er það frv. sem hér er lagt fram óbreytt frá tillögum nefndarinnar.
    Þau nýmæli sem koma fram í þessu frv. frá fyrri lögum eru eftirfarandi:
    1. Gerð er tillaga að rammalöggjöf þar sem sameinuð eru í ein lög ákvæði um farsóttir, sóttvarnir og varnir gegn tilteknum smitsjúkdómum. Hér er fylgt fordæmi annarra nágrannaþjóða okkar, svo sem Norðurlanda og Bretlands. Verði frv. að lögum mun það hafa í för með sér umtalsverða lagahreinsun þar sem gert er ráð fyrir að a.m.k. níu lög falli úr gildi við setningu þessara laga.
    2. Gert er ráð fyrir að ábyrgð á sóttvarnalögum verði áfram hjá embætti landlæknis. Samkvæmt gildandi lögum verði héraðslæknar sóttvarnalæknar, hver í sínu héraði, og auk þess skulu sóttvarnanefndir starfa í öllum kaupstöðum og er tollstjóri á hverjum stað formaður.
    Í ljósi gerbreyttra samgangna þykir eðlilegt að fella sóttvarnanefndina niður. Jafnframt þessu þykir nauðsynlegt að hjá embætti landlæknis verði ráðinn til starfa sérstakur læknir sem hefur sem aðalstarf að vinna að sóttvarnamálum, sóttvarnalæknir. Þetta er talið nauðsynlegt til þess að tryggja samræmi í sóttvörnum um landið allt, en að sjálfsögðu bera héraðslæknar eftir sem áður ábyrgð á sóttvörnum hver í sínu héraði undir yfirstjórn sóttvarnalæknis og heilsugæslulæknar og aðrir læknar eftir því sem við á.
    3. Um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma er fylgt mjög sambærilegum reglum og nú þegar gilda samkvæmt hinum ýmsum lögum um þessi efni, en þó eru ákvæði um skýrslugerð gerð mun skýrari en í gildandi lögum.
    Ef við víkjum að frv. sem slíku skiptist það í fimm kafla. I. kaflinn eru skilgreiningar þar sem gerður er greinarmunur á almennum sóttvarnaráðstöfunum sem eru þær ráðstafanir sem lögin gera ráð fyrir að ávallt skuli beita vegna smitsjúkdóma og opinberar

sóttvarnaráðstafanir sem skal beita í fyrsta lagi þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá Íslandi, í öðru lagi þegar hætta er á útbreiðslu farsótta innan lands og í þriðja lagi þegar smitaður einstaklingur með framferði sínu skapar hættu á útbreiðslu smits.
    Smitsjúkdómar eru samkvæmt lögunum sjúkdómar eða smitun sem örverur, smitefni eða sníkjudýr valda. Smitsjúkdómum er síðan skipt í tvennt, annars vegar farsóttir sem jafnframt eru skráningarskyldar og eru sjúkdómar sem ógnað geta almannaheill og hins vegar næmar sóttir sem aðeins eru tilkynningarskyldar. Það er gert ráð fyrir því að ráðherra geti með reglugerð breytt fylgiskjali sem er með lögunum um það hvaða sjúkdómar teljast farsóttir og hvaða sjúkdómar næmar sóttir.
    Í II. kafla er í frv. þessu rætt um yfirstjórn sóttvarna og svo sem fyrr segir er embætti landlæknis gert ábyrgt fyrir framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn heilbrrh. en gert ráð fyrir að til embættis landlæknis sé ráðinn sóttvarnalæknir. Þessi læknir þarf að hafa þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra.
    Verksvið sóttvarnalæknis er að skipuleggja og samræma sóttvarnir um land allt, að fylgjast með útbreiðslu sjúkdóma innan lands sem utan, að vera læknum og öðrum til ráðgjafar um sóttvarnir og hafa umsjón með öllum forvörnum gegn smitsjúkdómum og sjá um upplýsingaflæði og fræðslu til almennings og heilbrigðisstétta um málið.
    Gert er ráð fyrir að ráðherra skipi svokallað sóttvarnaráð sem sé heilbrigðisyfirvöldum til ráðgjafar. Þar sitji sjö menn með mismunandi sérfræðiþekkingu.
    III. kafli fjallar um almennar sóttvarnaráðstafanir og er þar fyrst rætt um skyldu einstaklinga. Það er lögð á alla sú almenna skylda að gjalda varúð við smitsjúkdómum og gera sér far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra. Þá er hver sá sem telur að hann sé haldinn smitsjúkdómi sem lögin taka til skyldugur að leita læknis og fá úr því skorið.
    Um skyldur lækna og heilbrigðisstarfsliðs eru nokkuð ítarlegar reglur. Læknum er skylt að hafa vakandi auga með smitsjúkdómum og tilkynna þá eftir þeim reglum sem við á. Nokkuð ítarlegar reglur eru um hvernig læknir ber sig
að þegar hann grunar sjúkling um smitsjúkdóm og hvaða leiða á að leita til að finna hvernig smit hefur borist.
    Munur á tilkynningarskyldum og skráningarskyldum sjúkdómi er sá að við skráningarskyldu verður að geta einstaklinga en við tilkynningarskyldu er verið að tilkynna um fjölda tilvika. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji að fengnum tillögum landlæknis reglugerð um fyrirkomulag tilkynninga og gert er ráð fyrir að í tilkynningu séu ekki skráðar fleiri upplýsingar en nauðsynlegt er til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma og til að framkvæma þær aðgerðir sem þörf er talin á. Sinni sjúklingur ekki fyrirmælum um meðferð ber lækni sjúklingsins að tilkynna það sóttvarnalækni. Sama skylda hvílir á öðrum starfsmönnum heilbrigðisþjónustu, starfsmönnum félagsmálastofnana og lögreglu ef um

slíkt er að ræða.
    Í þessum kafla er einnig rætt um skyldur heilbrigðisnefnda. Heilbrigðisfulltrúar og heilbrigðisnefndir þurfa að tilkynna sóttvarnalækni hafi þeir orðið varir við hugsanlega smithættu. Er hér átt við smithættu sem tengist dýrum, matvælum, vatni, skolplögnum, loftræstibúnaði eða öðru slíku í umhverfi sem dreift getur smitnæmum sjúkdómum.
    Í IV. kafla er rætt um opinberar sóttvarnaráðstafanir og er þar í fyrsta lagi rætt um sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á farsótt innan lands. Fái sóttvarnalæknir tilkynningu um smitsjúkdóm sem getur bent til farsóttar innan lands verður hann að tilkynna það heilbrrh. og ráðherra ákveður þá hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafana, svo sem ónæmisaðgerða, einangrunar smitaðra, sótthreinsunar, afkvíunar byggðarlaga eða landsins alls, lokunar skóla eða samkomubanns. Frekari ákvæði um opinberar sóttvarnaráðstafanir setur ráðherra með reglugerð.
    Um sóttvarnaráðstafanir sem grípa má til vegna hættu á farsótt frá útlöndum eða frá Íslandi til útlanda á að setja reglugerð í samræmi við efni þeirra alþjóðasamninga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem Ísland er aðili að svo sem nú er.
    Þurfi að grípa til aðgerða gagnvart einstaklingum til að hefta útbreiðslu smits hefur sóttvarnalæknir í samráði við héraðslækni heimild til sérstakra aðgerða og getur ef nauðsyn ber til leitað aðstoðar lögregluyfirvalda. Með sérstökum aðgerðum af þessu tagi er átt við læknisrannsókn, einangrun sjúklings á sjúkrahúsi eða með öðrum hætti, svo og aðrar ráðstafanir sem talið er að þurfi að grípa til án samþykkis sjúklings. Ákvörðun sóttvarnalæknis af þessu tagi má áfrýja til ráðherra en slík áfrýjun frestar ekki framkvæmd máls.
    Í 18. gr. er rætt um að sé maður haldinn smitsjúkdómi og fellst ekki á að fylgja reglum um meðferð og umgengni við aðra og rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli lagður inn á sjúkrahús í einangrun eða hann skuli einangraður með öðrum hætti
og eiga um þessa dvöl að gilda ákvæði lögræðislaga, nr. 68 30. maí 1984, sbr. 3. mgr. 13. gr. Þurfi slík einangrun að vara lengur en 15 daga skal gera kröfu fyrir dómi um sjálfræðissviptingu, sbr. 19. gr. lögræðislaga. Sá sem einangraður er með þessum hætti skal eftir því sem við verður komið njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur eins og um venjulega sjúkrahúsvist sé að ræða.
    Í V. kafla laganna eru ýmis ákvæði, þar á meðal að sett skuli á stofn göngudeild smitsjúkdóma í Reykjavík. Þá er gert ráð fyrir því að ráðherra velji sjúkrahús, eitt eða fleiri, þar sem aðstaða sé til einangrunar og rannsóknar vegna smitsjúkdóma. Ráðherra getur einnig falið ákveðnum rannsóknarstofum að ábyrgjast greiningu örvera eða sníkjudýra úr sýnum frá sjúklingum með smitsjúkdóma og að fylgjast með ónæmisástandi einstaklinga gegn þýðingarmiklum smitsjúkdómum.

    Í þessum kafla er rætt um kostnað og er gert ráð fyrir að kostnaður vegna smitsjúkdóma greiðist á sama hátt og annar sjúkra- og lækniskostnaður. Í kaflanum er einnig almenn heimild til að setja reglugerðir samkvæmt þessum lögum.
    Gert er ráð fyrir að lögin öðlist gildi 1. jan. 1991.
    Svo sem fyrr sagði gerir þetta lagafrv. ráð fyrir að hægt sé að fella úr gildi fjölmörg lög sem nú gilda um smitsjúkdóma. Í fyrsta lagi er hér um að ræða lög um útbúnað og ársútgjöld spítala handa holdsveikum mönnum frá febrúar 1898. Í öðru lagi lög um aðgreiningu holdsveikra frá öðrum mönnum og flutning þeirra á opinbera spítala frá 1898 með breytingu frá 1909. Í þriðja lagi berklavarnalög frá 1939. Í fjórða lagi lög um ráðstafanir til varnar gegn fýlasótt frá 1940. Í fimmta lagi um eyðingu rottu frá 1945. Í sjötta lagi lög um hundahald og varnir gegn sullaveiki frá 1953. Í sjöunda lagi sóttvarnalög frá 1954. Í áttunda lagi farsóttalög frá 1958. Og í níunda lagi lög um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978 með breytingum frá 1986.
    Gert er ráð fyrir að ráðherra ákveði með reglugerð hverjir smitsjúkdómar teljast farsóttir og hverjir næmar sóttir og í fskj. með lögunum er smitsjúkdómum skipt í tvo flokka í samræmi við þetta: Annars vegar farsóttir sem eru skráningarskyldar og hins vegar næmar sóttir sem eru tilkynningarskyldar. Í báðum flokkunum eru tilteknir sex smitsjúkdómaflokkar,
þ.e. þarmasmit, öndunarfærasmit, blóðborið smit, samræðissmit, skordýraborið smit og aðrir smitsjúkdómar.
    Sú skipting sem lögð er til í frv. nú er miðuð við það sem talið er nauðsynlegt í dag en verði breytingar á skoðunum sérfræðinga um flokkun getur ráðherra fært sjúkdóma milli flokka eða tekið inn nýja sjúkdóma ef þurfa þykir.
    Með frv. eru þrjú fskj. Í fyrsta lagi er fskj. 1 sem er mjög yfirgripsmikið yfirlit yfir þróun íslenskrar löggjafar um smitsjúkdóma. Hér yrði allt of langt mál að fara ítarlega yfir þetta yfirlit. Hins vegar verður þó að geta að þróun íslenskrar löggjafar á sviði sóttvarna hefst fyrir rúmlega einni öld því að fyrstu lögin sem lúta að þessu eru frá 1875, um mótvarnir gegn því að bólusótt og hin austurlenska kólerusótt og aðrar næmar sóttir flytjist til Íslands.
    Fyrstu lögin um útbreiðslu næmra sjúkdóma eru frá 1896 og segja má að þau lög hafi síðan þróast í núgildandi farsóttalög frá 1958. Snemma voru sett sérlög um holdsveika og gengu í gildi 1898 tvenn lög. Annars vegar lög um aðgreiningu holdsveikra frá öðrum mönnum og flutning á spítala og hins vegar lög um stofnun holdsveikraspítala á Íslandi. Þó þessi lög séu óþörf nú og úrelt eru þau enn í gildi. Fyrstu lög um varnir gegn berklaveiki gengu í gildi 1904 og núgildandi lög eru frá 1939.
    Ég mun ekki frekar rekja fskj. 1 um þróun íslenskrar löggjafar um smitsjúkdóma en bendi þingmönnum á það sem mjög þarfa lesningu þegar þeir taka afstöðu til þessa frv.
    Nefndin sem frv. samdi aflaði sér mikilla gagna

um sóttvarnalöggjöf annarra landa og í fskj. 2 er yfirlit um löggjöf Norðurlanda um smitsjúkdóma. Dönsku lögin eru frá 1980, finnsku lögin eru frá 1987 og sænsku lögin eru frá 1989 og gengu í gildi hinn 1. júlí sl. Í Noregi er svipað ástand og hjá okkur. Gildandi lög um smitsjúkdóma eru í endurskoðun. Það lagafrv. sem hér er lagt fram er í öllum meginatriðum í samræmi við þá stefnu sem Norðurlöndin hafa valið sér í sambandi við setningu nýrra laga um smitsjúkdóma.
    Í fskj. 3 eru drög að reglugerð um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. Þar er gert ráð fyrir að læknar skrái á þar til gerð eyðublöð, sem embætti landlæknis lætur gera og leggur til, upplýsingar um smitsjúkdóma og sama máli gegnir um forstöðumenn rannsóknastofnana, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana eftir því sem við á. Reglugerðardrögin gera síðan ráð fyrir mismunandi skráningu smitsjúkdóma eftir því hvort þeir eru taldir skráningarskyldir eða tilkynningarskyldir. Tilkynningu um skráningarskyldan sjúkdóm skal senda án tafar til sóttvarnalæknis en tilkynningu um fjölda tilkynningarskyldra smitsjúkdóma sendir læknir fyrir 10. dag næsta mánaðar á eftir til sóttvarnalæknis.
    Ég hef nú í stuttu máli gert grein fyrir því lagafrv. sem hér er lagt fram. Ég tel að hér hafi vel til tekist um að endurskoða og einfalda löggjöf um smitsjúkdóma og sóttvarnir og flestir eru sammála um að löngu var tímabært að gera breytingar á lagaákvæðum okkar í samræmi við breytta tíma. Það er von mín að þetta frv. fái jákvæðar undirtektir á Alþingi og að það fái afgreiðslu nægjanlega fljótt til þess að það geti tekið gildi eins og gert er ráð fyrir í ársbyrjun 1991. Frv. er því ekki eitt af forgangsmálunum á þingi nú á næstu dögum eða vikum en æskilegt væri að það fengi afgreiðslu samt sem áður á þessu þingi.
    Hæstv. forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.