Forgangur mála á dagskránni
Þriðjudaginn 28. nóvember 1989


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Hér liggur fyrir hv. deild dagskrá og mér sýnist að verði þessari dagskrá fylgt eigi að taka fyrir mál í þeirri röð sem þar getur, þ.e. næst um Stjórnarráð Íslands og síðan yfirstjórn umhverfismála o.s.frv. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að hér eru til umræðu í dag í fimmta lagi og sjötta lagi frv. sem hafa verið til umræðu áður á a.m.k. tveimur fundum ef ekki þremur og þannig stóð á þegar fundi lauk í síðustu viku að hæstv. fjmrh. var í miðri ræðu og gat þess þá að hann mundi flytja sína ræðu áfram á næsta fundi, en hann gerði hlé á ræðu sinni vegna tilmæla frá hæstv. forseta.
    Það urðu umræður um þingsköp í framhaldi af umræðunni þar sem ég beindi þeim tilmælum til hæstv. forseta að þetta mál, sem þá var til umræðu, þ.e. það mál sem nú er 5. mál á dagskrá, tekjuskattur og eignarskattur, frv. sem er 95. mál þingsins, fengi áframhaldandi meðferð hér hjá hv. deild. Ég óskaði þess sérstaklega að þetta mál yrði tekið sem fyrsta mál á dagskrá nú á þriðjudegi. Það komu engin loforð fram um að það yrði gert, en hins vegar sagðist forseti mundu beita sér fyrir því í samráði við formenn þingflokka að málið yrði tekið til umræðu og það klárað og sent til nefndar. Hæstv. fjmrh. tók til máls um
þingsköp og sagðist vera reiðubúinn til þess að halda þessari umræðu áfram. Hins vegar væri hann hugsanlega bundinn við umræðu í hv. Ed. og gæti þess vegna ekki verið viðstaddur við upphaf þessa fundar. Ég held að hæstv. fjmrh. sé alls ekki á fundi í Ed. Alþingis eins og sakir standa og mér sýnist hann ekki vera mættur hér í dag. Þess vegna finnst mér eðlilegt að fram komi skýringar á því hvers vegna ekki er haldið áfram umræðum um þetta mál sem brýnt er að komist til nefndar til þess að það geti fengið þar þá meðferð sem eðlileg er, en það er ljóst að það getur orðið meiri hluti fyrir meginatriðunum sem koma fram í þessum frv. báðum, enda hefur hv. 10. þm. Reykv. Guðmundur G. Þórarinsson lýst yfir stuðningi sínum við þau meginmarkmið sem koma fram í frv. og mér hefur heyrst á ræðu hans að það sé tiltölulega auðvelt að ná því samkomulagi sem nægir til þess að hægt verði að setja lög á grundvelli þeirra meginatriða sem koma fram í frv. Þess vegna er málið brýnt og kannski brýnna en mörg önnur mál sem hér eru á dagskrá í dag.
    Þess skal og getið að hæstv. viðskrh. hefur lýst því yfir að það hafi komið fram í blöðum í sumar og eins núna nýlega að hann hafi í hyggju að hreyfa þeim málum sem frv. snýst um. Hæstv. ráðherra hefur ekki verið viðstaddur þessa umræðu og ég hef rætt við hann og óskað eftir því að hann tæki þátt í þessari umræðu og gæfi álit sitt á þeim málum sem hér eru til umræðu. Hann er ekki heldur viðstaddur hér í dag.
    Nú langar mig til að spyrja hæstv. forseta að því hvort það sé vegna þess að hæstv. ráðherrar eru ekki viðstaddir sem þetta mál er ekki tekið fyrst á dagskrá

eða hvort einhver önnur sjónarmið liggja hér að baki. Eina sjónarmiðið sem gæti réttlætt það að málið er ekki til umræðu nú þegar er að hæstv. fjmrh. hafi fallið frá orðinu og það megi túlka það á þann veg að hann muni ásamt stjórnarliðum greiða fyrir því að þetta mál fari til nefndar og komist þaðan aftur og verði að lögum fyrir áramót. Hér er um að ræða mun mikilvægara mál en þau sem eru fyrst á dagskrá eins og t.d. málin um Stjórnarráð Íslands og yfirstjórn umhverfismála sem ekkert liggur á að afgreiða. Það er hégómamál hæstv. ríkisstjórnar að koma því máli áfram vegna þess að það er búið að setja á laggirnar ríkisstjórn í landinu þar sem umhverfisráðuneytismál hafa verið notuð sem gjaldmynt en þegar kemur að málum sem virkilega skipta máli fyrir atvinnulífið í landinu er þeim vikið til hliðar með þessum hætti.
    Sé það svo, virðulegur forseti, að hæstv. fjmrh., sem óskaði eftir því á sínum tíma að málinu yrði frestað þannig að hann gæti tekið þátt í umræðunni, hafi nú óskað eftir því að málið gangi til nefndar skil ég það svo að hann hafi með því að falla frá orðinu í miðri ræðu verið að lýsa því yfir að hann vilji veita málinu brautargengi í gegnum þingið þannig að þetta frv. og þessi frumvörp geti orðið að lögum fyrir jól. Það er ljóst að það er stuðningur við málið af hálfu a.m.k. sumra stjórnarliða og sé þetta réttur skilningur af minni hálfu finnst mér það eðlilegt að þessi mál gangi beint til nefndar. Sé það hins vegar rangur skilningur minn skil ég ekki hvers vegna er verið að breyta dagskránni og ýta brýnum málum sem fyrr komu fram á þinginu aftur fyrir mál sem ekki skiptir máli hvort verða að lögum núna á næstu vikum eða ekki.