Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þennan úrskurð sem hér kemur fram, en ég vil enn á ný ítreka það að af minni hálfu er fallist á þessa málsmeðferð vegna þess að ég tel að hér í umræðunum hafi komið fram að það sé sá stuðningur við þessi mál að þess megi vænta að þau eigi greiða leið í gegnum hv. fjh.- og viðskn. þar sem við eigum sæti, m.a., ég og hv. 10. þm. Reykv. sem hér hefur talað í þessum þingskapaumræðum.