Stjórnarráð Íslands
Þriðjudaginn 28. nóvember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. hagstofuráðherra fyrir að sjá af tíma fyrir þingdeildina og ákveða að koma hér og vera viðstaddur þessa umræðu sem óneitanlega snertir hann að miklu leyti.
    Það mál sem hér er til umræðu, þ.e. stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis, er lokagreiðsla ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar til Borgfl. fyrir sál þeirra og kokgleypingu stefnu þess flokks. Þennan reikning sendir Borgfl. þegnum þessa lands í auknum útgjöldum ríkissjóðs við uppsetningu og rekstur sjálfstæðs ráðuneytis sem best væri vistað í öðru ráðuneyti.
    Það ráðuneyti sem setja á á stofn fyrir stuðning Borgfl. er ráðuneyti sem á eftir að bólgna út og verða að bákni áður en við getum áttað okkur á hvað er að gerast. Nægir í því tilefni að líta til reynslu annarra þjóða í því sambandi. Slíkt ráðuneyti verður mannfrekt og kostnaðarsamt og það hlýtur að vekja furðu manna að á sama tíma og ríkisstjórnin boðar aðhald og sparnað í kerfinu sem annars staðar er hún í raun fremst í flokki með bruðl og óráðsíu. Á sama tíma vinnur nefnd að því að stokka upp Stjórnarráðið sem er vissulega nauðsynlegt og löngu tímabært mál, en út úr þeirri vinnu virðist ljóst að ráðuneytin eigi engu að síður að vera 11. Væri nú ekki nær að taka stefnuna á svona 5--8 ráðuneyti og sýna þar með fordæmi, enda þarf ekki 250 þúsund manna þjóðfélag sem okkar, sem er reyndar ekki fjölmennara en ein breiðgata í New York, á öllum þessum ráðherrum að halda. Því á hiklaust að fara í raunhæfan niðurskurð á ráðuneytum og, eins og ég segi, hafa þau alls ekki fleiri en 8.
    Það er víst lítil von til þess að svo verði á meðan þeir menn sem nú skipa ríkisstjórn Íslands sitja sem fastast og hafa reyndar myndað með sér hræðslubandalag þar sem enginn af ríkisstjórnarflokkunum hefði efni á því að leggja verk sín undir dóm kjósenda. En þar sem þessu nýja ráðuneyti verður m.a. falið að fara með mengunarvarnir væri réttast að það sneri sér fyrst að sjálfri ríkisstjórninni sem er einhver mesti mengunarvaldur í íslensku efnahags- og þjóðlífi sem um getur í sögu lýðveldisins.
    Hæstv. forseti. Ég gagnrýndi það þegar málið var tekið fyrir til 1. umr. að Frjálslynda hægriflokknum var ekki boðin þátttaka í þeirri nefnd sem um málið
fjallaði og að því er mér skilst var Sjálfstfl. ekki heldur boðin þátttaka í því starfi. Hins vegar var einum stjórnarandstöðuflokki boðin þátttaka sem hann þáði, en það var Kvennalistinn. Þrátt fyrir þetta var málið tekið á dagskrá með afbrigðum og knúin fram umræða þótt ljóst væri að flokkum var mismunað við allan undirbúning málsins. Það vakti ekki síður athygli mína að með bréfi dags. 11. okt. 1989 sendi Kvennalistinn herra Jóni Sveinssyni, aðstoðarmanni forsrh., bréf þar sem segir, með leyfi forseta:
    ,,Þökkum bréf þitt dags. 2. okt. sl. þar sem óskað

er eftir afstöðu stjórnarflokkanna og Kvennalista til einstakra verkefna nýs ráðuneytis umhverfismála.``
    Hér hafði sem sagt forsrn. óskað eftir afstöðu allra flokka á þingi nema hægri flokkanna. Það er vissulega ástæða til þess að harma slík vinnubrögð sem þó koma mér alls ekki á óvart. Ég vil hins vegar að það komi fram að Kvennalistinn kom auga á þetta óréttlæti, þessi vinnubrögð og gagnrýndi þau í bréfi sínu og skulu þær eiga heiður skilið fyrir það. En þær sögðu í niðurlagi síns svars, með leyfi forseta:
    ,,Jafnframt gagnrýnum við að ekki skuli leitað samráðs og álits allra þingflokka og óskum eftir að svo verði gert.``
    Það er skemmst frá því að segja að við þessari ósk var ekki orðið.
    Hæstv. forseti. Við upphaf þessarar umræðu þann 8. nóv. sl. upplýsti hv. þm. Ólafur Einarsson þingheim um það að hæstv. hagstofuráðherra, sem menn hafa hingað til álitið að verði umhverfisráðherra nái ríkisstjórnin þessu máli í gegn, væri að eigin áliti þegar orðinn ráðherra umhverfismála. Því læddist að manni sú hugsun að þessi umræða öll væri hin mesta tímaeyðsla og skipti alls engu máli. Þingmaðurinn upplýsti nefnilega að hæstv. hagstofuráðherra væri þegar farinn að nota titilinn umhverfismálaráðherra og væri farinn að undirrita bréf á þann veg. Ráðherrann, sem hafði í ræðu sinni lýst því að þetta ráðuneyti mundi útkalla veruleg ferðalög af hans hendi, upplýsti svona óvart þingheim um það að enskukunnátta hans er nú ekki alveg eins og æskilegt væri af ráðherra sem hefur hug á því að ferðast mikið fyrir landsins hönd og síns ráðuneytis í framtíðinni. Hitt er þó öllu verra þegar ráðherra í ríkisstjórn Íslands lýsir því yfir við alþjóð í sjónvarpsviðtali að hann sé reiðubúinn til þess að falsa hvaða starfstitil sem er, sé það einhverju málefni sem honum er hugleikið til framdráttar, jafnvel eins og hann orðaði það, að undirrita bréf sem hertoginn af Madagaskar.
    Hvar sem er í hinum siðmenntaða heimi væri ráðherra sem staðinn væri að slíkri undirskriftafölsun umsvifalaust sviptur embætti, að ég tali nú ekki um ráðherra sem lýsir því jafnafdráttarlaust yfir að þessum aðferðum sé hann tilbúinn að beita hvenær sem er.
    En það gegnir öðru máli hér og er reyndar í fullu samræmi við siðferðiskennd
ráðherra okkar í dag. Nú finnst mönnum allt í lagi þó að erlendir viðskiptavinir eða aðrir séu hreinlega blekktir og látnir halda að til sé ráðherra og ráðuneyti sem alls ekki er til.
    Það vakti þó sérstaka athygli mína í vörnum ráðherra Hagstofunnar fyrir
þessu glappaskoti þegar hann sagðist hafa verið að reyna að hlaða titlum undir bréfið --- væntanlega til þess að gefa því meiri vigt. Að hann undirritaði það ekki sem ráðherra Hagstofu, af hverju veit ég ekki. Ef til vill var það enskukunnáttan sem kom í veg fyrir það.
    Hæstv. forseti. Það hefur margoft verið sagt að mengun virði engin landamæri. Því varðar verndun náttúrulegra auðlinda margar þjóðir. Þess vegna er

alveg óhætt að fullyrða að umhverfismál sé alþjóðlegt mál. Nægir í því sambandi að minna á verndun ósonlags jarðar sem allar siðmenntaðar þjóðir láta sig varða og það hefur Ísland einnig gert.
    Það er í raun ánægjulegt að Ísland skuli vera jafnvirkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál og raun ber vitni eða eins og segir um þann þátt í skýrslu þeirri sem nefnd um stefnu Íslendinga gagnvart Evrópubandalaginu samdi, þ.e. Ísland og Evrópa 3. rit, en þar er upptalning á því samstarfi sem við tökum þátt í. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðasamstarfi til að koma í veg fyrir mengun sjávar og er aðili að alþjóðasamningum um varnir gegn mengun sjávar frá skipum, svokallaður MORPOL-samningur frá 1973, um bann við losun úrgangsefna í hafið, London Dumping Convention frá 1972 og samningum um aðgerðir ef olíuslys ber að höndum. Þessir samningar eru á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (EMO). Ísland er einnig aðili að samningum þjóða við norðaustanvert Atlantshaf um varnir gegn mengun þess hafsvæðis, þ.e. gegn losun úrgangsefna í hafið frá skipum og flugvélum, og um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum. Ísland hefur enn fremur fullgilt hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1982, en í honum eru ákvæði um mengunarvarnir.
    Samstarf er um umhverfisvernd á vegum ýmissa annarra alþjóðasamtaka. Evrópuráðið hefur t.d. beitt sér fyrir verndun villtra dýrastofna. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) fæst við samstarf um prófun á hugsanlegum skaðlegum áhrifum efnasambanda og efnahagsnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu (ECE) hefur beitt sér fyrir samningi um að dregið verði úr útblæstri brennisteinsdíoxíða, sem valda súrri úrkomu, um 30% fyrir næstu aldamót.``
    Það er athyglisvert í ljósi þess að hér vorum við að ræða hvort við ættum að fara í viðræður með EFTA við EB að eftir því sem ritið segir þá sé unnið að samræmingu löggjafar um umhverfismál á vegum EB, en að innan EFTA sé lítið sem ekkert starfað að umhverfismálum.
    Í því riti vekur einnig athygli mína að dagana 25. og 26. okt. 1987 héldu umhverfismálaráðherrar EFTA og EB sameiginlegan fund þar sem ákveðið var að auka samstarf landanna að umhverfisvernd. Á þennan fund vantaði aðeins eitt land, Ísland, og er vissulega ástæða til að harma það og inna eftir því af hverju okkar fulltrúi var ekki á þessum fundi.
    Hæstv. forseti. Allur almenningur um gjörvallan heim er sér æ meir meðvitaður um umhverfi sitt og maðurinn er farinn að umgangast náttúruna á allt annan hátt en áður fyrr. Nú spretta upp alls kyns samtök sem hafa það eitt markmið að vernda náttúruna og lífríkið. Nægir að nefna t.d. Líf og land hér heima og ætli einhverjir kannist ekki við samtökin Greenpeace. Þetta er ekki síst vegna mikils áróðurs fyrir hollu og heilbrigðu líferni samfara styttingu vinnuvikunnar og lengra orlofi. Þetta hefur náðst með samstilltu átaki fólks, hvort sem er í bæjum eða til

sveita, og það leiðir mig að þeirri spurningu til hæstv. forsrh. hvort fullt samstarf hafi verið við sveitarstjórnir landsins við samningu þessa frv. og stofnun umhverfisráðuneytis.
    Það tel ég vera afar brýnt að stjórnun umhverfismála sé strax frá upphafi í ásættanlegum farvegi fyrir sveitarstjórnir landsins. Það verður að vera um samræmda stjórnun að ræða sem taki til mála svo sem landfoks, gróðureyðingar, mengunarmála, friðunar, náttúruverndar, gróðureftirlits, og svo mætti sjálfsagt halda áfram með upptalninguna, án þess þó að gleyma forvarnar- og fræðslustarfi sem hvort tveggja er mjög mikilvægt að sé strax tekið föstum tökum og hvergi slegið af.
    Með forvarnar- og fræðslustarfi er hægt að koma í veg fyrir mikil spjöll og skaða. Þau þurfa hins vegar að vera markvisst unnin og kynnt. Fræðslustarfið á hiklaust að taka upp í skólakerfinu á grunnskólastigi og mætti forvarnarstarfið einnig beinast nokkuð á þá braut þó það eigi ef til vill jafnvel meira heima utan skólakerfisins í formi alls kyns upplýsinga og kynninga til almennings um umgengni og virðingu við náttúruna.
    Varðandi forvarnarstarf og eftirlit vil ég nota tækifærið og minna þingheim á þáltill. sem við fluttum hér á síðasta þingi ég og hv. þm. Hreggviður Jónsson um könnun á kaupum og rekstri dvergkafbáts. Að þessari tillögu brostu margir góðlátlega en það voru aðeins þeir skammsýnu. Slíkt tæki gæti nýst mjög vel við einmitt þennan þátt, forvarnar- og eftirlitsstarf, til dæmis með
laxeldi í sjó svo eitthvað sé nefnt. Þessa tillögu munum við endurflytja og við vonum að betur verði við henni tekið nú en á síðasta þingi.
    Hitt er svo annað mál að að mínu mati er mengun sem betur fer ekki stórt vandamál hérlendis. Við eigum hins vegar að vera okkur þess meðvituð að slíkir hlutir geta breyst á ótrúlega skömmum tíma og þá kemur auðvitað enn og aftur að fræðslu- og forvarnarstarfi og mikilvægi þess. Við eigum að bera gæfu til þess að berjast gegn þeirri mengun sem nú er til staðar og gæta þess að hún aukist ekki á Íslandi.
    Við eigum að gæta alveg sérstaklega auðlinda okkar, vernda þær og nýtingu þeirra, enda er það lífsspursmál fyrir okkur Íslendinga að halda hér sem ómenguðustum fiskimiðum og gróðurlendi. Því hvað er það sem við þurfum að selja? Það er ómengað Ísland, landið með ómenguðu vörurnar er vörumerki sem við eigum að þekkjast undir og það víða um heim. Á þeim forsendum eigum við að afla markaða, undir einhverju slíku kjörorði eigum við að starfa, en um þennan lið mun ég fjalla örlítið nánar í seinni ræðu minni.
    Hæstv. forseti. Mér skilst að það séu 24 ár síðan hugmyndir um stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis komu fyrst fram. Það er orðinn ansi langur meðgöngutími, svo langur að ég tel hann orðinn nógu langan og að nú þurfi að fara að framkalla fæðingu. Ég er hins vegar gersamlega á móti því að það þurfi að setja á laggirnar sjálfstætt ráðuneyti með öllu sem

því tilheyrir. Hins vegar er fyllilega tímabært að samræma stjórn umhverfismála í eitthvert af eldri ráðuneytunum.
    Sjálfstfl. hefur bent á samgrn. í því efni. Ég ætla hins vegar ekki að mynda mér neina sérstaka skoðun á því á þessari stundu hvar væri best að vista ráðuneytið. Það er seinni tíma mál. Fyrst er að vinna grunnvinnuna, samræmingarvinnuna, að því loknu verður það tæplega mikið mál að finna heimili fyrir krógann.
    Málefni tengd umhverfismálum eru í allmörgum ráðuneytum, átta hef ég reyndar heyrt. Auðvitað verður að samræma þetta en það er sjálfsagt erfitt á köflum og jafnvel ekki hægt í einhverjum tilfellum. Sama má segja um ýmsar stofnanir sem við fyrstu yfirsýn virðist kannski eiga að flytja í heilu lagi undir yfirstjórn umhverfismála, en þegar betur er að gáð getur það reynst afar erfitt og nauðsynlegt að brjóta þær upp. Allt getur þetta hins vegar leitt til togstreitu, bæði milli stofnana annars vegar og einnig milli ráðuneyta hins vegar, þegar málefni fara að skarast. Og það höfum við reyndar fjölmörg dæmi um án þess að ég ætli að fara að tíunda þau nú en geri það ef til vill síðar í ræðu minni.
    Hæstv. forseti. Þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við öflun umsagna um málið af hendi forsrn. vöktu athygli mína og fjölmargra þeirra sem fengu beiðni um umsögn. Þess er nefnilega sérstaklega óskað af öllum er beiðnina fengu frá ráðuneytinu að ekki verði sérstaklega fjallað um og afstaða tekin til stofnunar umhverfisráðuneytis þar sem ákvörðun um það hafi þegar verið tekin í málefnasamningi.
    Þetta hlýtur að vekja furðu þar sem málið er í raun sent flestum þeim aðilum og stofnunum sem málið snertir. Það er svona eins og menn hafi ekki verið nægilega sannfærðir sjálfir og viljað reyna að koma í veg fyrir faglega umfjöllun um málið, enda kemur það berlega í ljós í fjölmörgum umsögnum um frv. að aðilar hefðu kosið að fá að fjalla um málið í heild sinni en ekki aðeins þá afmörkuðu þætti sem um var beðið. Þessi ótti kemur m.a. fram í því að frv. þetta virðist ekki unnið í samráði við sveitarstjórnir sem maður hefði þó talið eðlilegt til þess að nokkur friður gæti skapast um málið.
    Hæstv. forseti. Ég ætla nú að leyfa mér að fara lauslega yfir nokkrar þær umsagnir sem nefndinni um stofnun umhverfisráðuneytis bárust en þar kennir ýmissa grasa. En áður en ég geri það vil ég minna á það að í þeirri nefnd var ekki einhugur um stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis eins og fram kom hjá einum nefndarmanna, Bjarna Guðleifssyni. Hann ákvað hins vegar að taka þátt í starfinu þar sem ákvörðun um stofnun ráðuneytisins hafði þegar verið tekin.
    Hæstv. forseti. Ég ætla þá að fá að fara yfir nokkrar umsagnir ýmist í heilu lagi eða taka úr þeim smákafla, og byrja þá á umsögn þjóðminjavarðar, Þórs Magnússonar, en hann er ekki alveg sáttur við frv. eins og fram kemur í eftirfarandi umsögn, með leyfi forseta:
    ,,Í 3. lið í upptalningu um málefni ráðuneytisins

segir að það skuli hafa með að gera friðun húsa og annarra mannvirkja. Önnur mannvirki tel ég að eigi hér við byggingar eða mannvirki ofan jarðar en ekki rústir eða tættur.
    Friðun húsa fer nú fram með tvennum hætti. Annars vegar eru hús sem eru á fornleifaskrá sem svo er kallað. Það eru gömul hús sem Þjóðminjasafnið á beinlínis, hefur keypt þau eða því verið gefin eða ráðstafað til safnsins á annan hátt, svo og hús sem safnið hefur tekið að sér að varðveita þótt í eigu annarra séu. Stendur safnið þá straum af viðhaldskostnaði af fé því sem til þess er veitt á fjárlögum. Sem dæmi um hið fyrra eru t.d. Víðimýrarkirkja í Skagafirði og gömlu húsin á Keldum og Rangárvöllum, en um hið síðara Hofskirkja í Öræfum. Í síðara tilvikinu á söfnuðurinn kirkjuna en
Þjóðminjasafnið ber kostnað af viðhaldi hennar og vernd og annast það.
    Hins vegar eru svo hús sem friðlýst eru samkvæmt ákvæðum 4. gr. þjóðminjalaga frá 1969 sem þá voru nýmæli og hliðstæð ákvæði eru í þjóðminjalögum sem taka gildi um næstu áramót. Þau hús sem þannig eru friðuð eru í eigu annarra en safnsins en menntmrh. ákveður friðun sem þá er kostuð af eiganda nema hvað styrkir eru á stundum veittir úr húsfriðunarsjóði.
    Mér þykir einsýnt að fyrri flokkurinn, hús á fornleifaskrá, muni áfram falla undr menntmrn. sem hluti af Þjóðminjasafni Íslands þar sem húsin eru í flestum tilvikum safngripir eingöngu þótt kirkjurnar séu sumar notaðar sem slíkar. Í síðari flokknum eru húsin ekki bundin Þjóðminjasafni beinlínis, en þó er umsjón þeirra og friðun nátengd því þar sem húsfriðunarnefnd starfar innan veggja safnsins, þjóðminjavörður er formaður hennar og deildarstjóri húsverndunardeildar ritari og framkvæmdastjóri nefndarinnar. Lætur reyndar að líkum að málefni þessi þurfa að tengjast mjög náið.
    Í sjálfu sér væri hið eðlilega að báðir þessir flokkar fylgdust áfram að undir sama ráðuneyti þar sem tilgangurinn er hinn sami, þ.e. verndun menningararfs. Er reyndar gert ráð fyrir sama hætti áfram í hinum nýju þjóðminjalögum. Eina ástæðan til að færa þennan þátt undan menntmrn. og undir umhverfismálaráðuneyti væri í rauninni ef með því fengist aukin fjárveiting til varðveislu og viðgerða gamalla húsa og auðveldara væri að koma í kring friðun þeirra en verið hefur, en gert er einmitt ráð fyrir mjög aukinni fjárveitingu til verndunar gamalla bygginga í nýjum lögum og aukinni vernd þeirra.
    Það lætur að líkum að eðlilegra sé að hafa alla þætti þjóðminjavörslu, söfn, rannsóknir og varðveislu hvers kyns menningarminja undir sama ráðuneytinu og þá að sjálfsögðu menntmrn. Stundum hefur verið nefnt að menntmrn. kynni að verða skipt upp í tvö ráðuneyti, skólamála- og menningarmálaráðuneyti og þá væri eðlilegt að þjóðminjavarsla fylgdi menningarmálageiranum.``
    Í umsögn frá FÍN, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, eru nokkrar ábendingar og ekki síður krafa um

skilgreiningu. Til að mynda telja þeir nauðsynlegt að skilgreint verði hvað teljist umhverfi og þar með hvert sé viðfangsefni umhverfismálaráðuneytisins. Því spyr ég hæstv. forsrh. og/eða hæstv. verðandi umhverfisráðherra, hæstv. hagstofuráðherra, um skilgreiningu á þessu. En sjálfir segja þeir í FÍN, með leyfi forseta:
    ,,Ekki kemur fram í plöggum þeim sem FÍN hafa borist að umhverfi sé skilgreint í frumvarpi, reglugerð né greinargerð. Þetta þarf þó að gera því að ekki er hægt að taka upp nýtt stjórnsýslusvið nema það hafi skilgreint viðfangsefni. Því fylgir að ekki er á rökrænan hátt hægt að tilgreina málaflokka þá sem undir umhverfismálaráðuneytið skuli heyra nema umhverfi og umhverfismál séu áður skilgreind á fullnægjandi hátt.``
    FÍN telur einnig að gera verði grein fyrir öflun og meðferð umhverfisþekkingar en án hennar verði stjórn umhverfismála ógerleg. Auðvitað hefur ríkisstjórnin gert þetta. Hitt er hins vegar verra að þingheimur veit ekkert um þennan þátt og því eru hæstv. ráðherrar, hæstv. forsrh. og hæstv. hagstofuráðherra, beðnir að upplýsa okkur hér um þessi atriði.
    Það er einnig skoðun FÍN að það orki tvímælis að flytja stofnanir eins og Náttúrufræðistofnun, Veðurstofuna og Hollustuvernd í heild sinni og reyndar segja þeir að það sé óstætt á því sjónarmiði að stofnanir skuli fluttar í heild eða þá alls ekki. Þessi skoðun kemur fram í mörgum umsögnum. FÍN lýsir því einnig sem sinni skoðun að frá upphafi verði starfandi í umhverfisráðuneytinu nægilegur fjöldi manna með viðeigandi sérþekkingu í náttúrufræðum. Á þetta atriði leggja þeir þunga áherslu.
    Samkvæmt kostnaðaryfirliti því, sem birt er í frv. fyrir umhverfisráðuneyti fyrir árið 1990, er liður sem heitir Sérfræðingar. Nánar tiltekið er þar um að ræða tvö stöðugildi frá 1. apríl 1990. Nú vil ég spyrja hvort þetta eru sérfræðingar með sérþekkingu á náttúrufræðum og hvort þetta sé nægilegur fjöldi að mati verðandi ráðherra með tilliti til umsagnar FÍN eða sér ekki ráðherra fram á það eins og allir aðrir að sérfræðingafjöldinn verði orðinn margföld þessi tala sennilega áður en árið er liðið?
    FÍN þykir orka tvímælis að Veðurstofan skuli eiga að flytjast til hins nýja ráðuneytis, en hvað segir Páll Bergþórsson veðurstofustjóri um það? Það er m.a. eftirfarandi, með leyfi forseta:
    ,,Fyrir þessari breytingu sýnast ekki sérlega aðkallandi ástæður. Vissulega snýr starfsemi Veðurstofunnar að umhverfismálum að því leyti að veðurfar lengri og skemmri tíma mótar mjög náttúruleg skilyrði þjóðarinnar til hvers konar framkvæmda og tilvistar. Starfsemin felst þó miklu fremur í því að þjóna atvinnuvegum og þjóðfélagshópum en að hafa nokkur mótandi áhrif í umhverfismálum. Einna nánast og stöðugast samband hefur Veðurstofan við alla þá sem að flugmálum vinna þó að þjónustan við sjómenn og bændur sé mjög ríkur þáttur í starfseminni. En í þeirri þjónustu koma líka samgöngur á sjó og landi mjög við sögu.

Áhugi þéttbýlisbúa á veðri tengist líka að miklu leyti ferðalögum. Þessi staðreynd ásamt því að um langan tíma hefur skapast mjög
gott samstarf við alla aðila í samgrn. veldur því að mér virðist mjög varhugavert að slíta því fyrirkomulagi sem svo vel hefur reynst.
    Líka má benda á að sé litið til nítján nálægra landa, sem Veðurstofan hefur talsverð samskipti við, kemur í ljós samkvæmt handbókum Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar að í níu þessara landa heyra veðurstofur undir ráðuneyti sem fjalla m.a. um samgöngumál og í þeim hópi eru Danmörk, Finnland og Svíþjóð. Næst í röðinni koma þrjú þar sem veðurstofur heyra undir ráðuneyti mennta- og vísindamála, í aðeins tveimur undir umhverfismálaráðuneyti en í fimm öðrum löndum eru það önnur ráðuneyti, sitt af hverju tagi, sem fara með mál veðurstofanna.
    Niðurstaða mín er því sú að góð rök séu fyrir því að Veðurstofan heyri undir samgrn. og ég mæli með því að svo verði framvegis. Þetta er í samræmi við það álit fyrirrennara míns, Hlyns Sigtryggssonar, sem hann lét í ljós í mars sl. í svari við fyrirspurn frá allshn. neðri deildar Alþingis um frv. sem þá hafði komið fram um umhverfismál.``
    Þarna er afar athyglisvert sem fram kemur, að í nítján nálægum löndum heyra veðurstofur til umhverfisráðuneytis í aðeins tveimur þeirra. Og meira að segja fyrirheitna landið, Svíþjóð, hefur veðurstofu sína undir samgrn.
    Í umsögn frá Geislavörnum ríkisins kemur enn fram andstaða við frv., en í umsögninni segir, með leyfi forseta:
    ,,Samkvæmt drögum að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 96 31. des. 1969, um Stjórnarráð Íslands, er gert ráð fyrir að starfsemi Geislavarna ríkisins flytjist frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu til fyrirhugaðs umhverfisráðuneytis. Um stofnunina og starfssvið hennar er ekki fjallað í grg. nema hvað hennar er getið í upptalningu undir liðnum ,,mengunarvarnir``. Vegna þessa skal sérstaklega á það bent að mengunarvarnir eru mjög lítill þáttur í starfsemi stofnunarinnar. Langstærsti hluti verkefna stofnunarinnar er á sviði heilbrigðismála.``
    Og síðar í umsögninni segir:
    ,,Það er sameiginleg niðurstaða stjórnar og forstöðumanns Geislavarna ríkisins að ekki eigi að flytja starfsemi stofnunarinnar frá því ráðuneyti sem fer með yfirstjórn heilbrigðismála undir annað ráðuneyti þar sem langstærsti hluti verkefna stofnunarinnar sé á sviði heilbrigðismála í tengslum við sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og aðrar heilbrigðisstofnanir.
    Núverandi fyrirkomulag geislavarna hér á landi er í samræmi við fyrirkomulag geislavarna annars staðar á Norðurlöndum. Sérstaklega skal á það bent að yfirstjórn geislavarnastofnana Danmerkur og Noregs er í höndum heilbrigðisráðuneyta landanna þrátt fyrir að í báðum löndunum séu starfandi umfangsmikil

umhverfisráðuneyti.``
    Undir þessi sjónarmið Geislavarna ríkisins tekur Háskóli Íslands, læknadeild, fyllilega en í þeirra umsögn segir, með leyfi forseta:
    ,,Þá er það einnig skoðun landlæknis, Ólafs Ólafssonar, að Geislavarnir ríkisins og Hollustuvernd ríkisins eigi báðar að falla áfram undir heilbrigðisráðuneytið.``
    Heilbrigðiseftirlit Eyjafjarðar sendi inn athyglisverða umsögn þar sem teknar eru saman þeirra hugmyndir að umhverfismálastefnu, stjórn og skipan, og þetta útfært í stuttu máli. En það sem vakti sérstaka undrun þeirra var það að að þeirra mati vantaði í umræðuna starf vinnueftirlits og bentu þeir réttilega á að mengun á vinnustöðum er stór þáttur umhverfismála. Ætti að nægja að nefna hávaðamengun, geislamengun, reykmengun o.s.frv.
    Í umsögn Vinnueftirlitsins kemur fram sú skoðun þeirra að Vinnueftirlitið eigi að falla undir það ráðuneyti sem fer með vinnumarkaðsmál, þ.e. félmrn. Reyndar benda þeir á að vinnueftirlit á hinum Norðurlöndunum heyri allt undir ráðuneyti vinnumarkaðsmála.
    Borgarlæknir, Skúli G. Johnsen, tekur mjög skýra afstöðu til málsins, þ.e. hvort heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna eigi að flytjast til umhverfisráðuneytisins, en hann segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna er og hefur verið umhverfiseftirlit, þ.e. eftirlit með hollustuháttum og hreinlæti, þar á meðal með mengun matvæla annars vegar og eftirlit með hvers konar umhverfismengun, þar á meðal með frárennsli og sorpi hins vegar. Æskilegast er að sem mest af þessu eftirliti verði áfram í sveitarfélögunum en þar hefur það smám saman þróast undanfarna áratugi. Það er meginatriði að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna heyri áfram undir sama ráðuneyti og kemur því að mínu áliti ekki til greina að taka svokölluð mengunarmálefni úr lögunum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og flytja til umhverfisráðuneytis. Það væri ófróm stjórnsýsla því heilbrigðiseftirlit og mengunareftirlit er sami hluturinn sem ekki er mögulegt að greina í sundur.``
    Hollustuvernd ríkisins er greinilega langt frá því að vera ánægð með þá niðurstöðu að hún skuli í heild sinni eiga að færast til umhverfisráðuneytis. Segir m.a. í umsögn þeirra, með leyfi forseta:
    ,,Í umfjöllun nefndarinnar um Hollustuvernd ríkisins annars vegar og
Siglingamálastofnun ríkisins hins vegar kemur fram þversögn. Lagt er til að öll svið Hollustuverndar ríkisins verði sett undir umhverfisráðuneytið en aðeins mengunarvarnadeild Siglingamálastofnunarinnar. Ekkert er því til fyrirstöðu að sami háttur verði hafður á hjá Hollustuvernd og Siglingamálastofnun, þ.e. að aðeins mengunarvarnir þar sem eru fimm stöðugildi af 28 innan stofnunarinnar, verði settar undir umhverfisráðuneytið ef fallið verður frá flutningi stofnunarinnar í heild.

    Heilbrigðiseftirlit og rannsóknastofa Hollustuverndar ríkisins hafa yfirumsjón með almennu heilbrigðis- og matvælaeftirliti og vegur matvælaþátturinn þar mest. Ef rök mæla með því að matvælaeftirlit á vegum heilbrigðisráðuneytisins eigi að fara undir umhverfisráðuneytið þá vaknar sú spurning hvort hið sama eigi ekki við um umfangsmeira matvælaeftirlit, t.d. á vegum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins.
    Okkur er ekki kunnugt að matvælaeftirlit í nágrannalöndum sé undir umhverfisráðuneytum.``
    Er ekki í raun fáránlegt að vera að færa tuttugu og þrjá menn til þegar það virðist duga að færa aðeins fimm, þ.e. starfsmenn mengunarvarna. Það er mitt álit. En hvað finnst ráðherrunum hæstv.? Og hvað segja þeir um þá spurningu Hollustuverndar ríkisins að matvælaeftirlit í landbúnaði og sjávarútvegi eigi allt eins að fara undir umhverfisráðuneytið eins og matvælaeftirlit heilbrrn.?
    Um þennan flutning Hollustuverndar ríkisins segir Náttúruverndarráð það sína skoðun að mengunarvarnadeild Hollustuverndar ríkisins, þ.e. þann þátt í starfsemi stofnunarinnar er fjallar um svokallaða ytri mengun, eigi að flytja yfir í umhverfisráðuneyti en ekki alla stofnunina.
    Það er því ljóst að mikil andstaða er við þennan flutning á Hollustuvernd yfir í hið nýja ráðuneyti og er sú andstaða studd sterkum rökum. Á þau er hins vegar ekkert hlustað.
    Hæstv. forseti. Það er nokkuð fróðlegt að lesa umsagnir hinna ýmsu ráðuneyta sem berlega sýna samstöðuna milli ráðuneytanna við uppsetningu umhverfisráðuneytis. Við skulum líta á nokkrar umsagnir. Í umsögn samgrn. segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Segja má að nokkuð mæli með því að Landmælingar Íslands heyri undir umhverfisráðuneyti ef skipulags- og byggingamál heyra undir það ráðuneyti. Hins vegar mun vera afar óalgengt í nágrannalöndum okkar að landmælingar heyri undir umhverfisráðuneyti og ráðuneytið sér ekki nein algild rök fyrir að svo skuli vera.
    Að mati ráðuneytisins mæla engin rök með því að Veðurstofa Íslands skuli flutt undir umhverfisráðuneytið. Vill ráðuneytið í því sambandi m.a. benda á víðtækt samstarf sem Veðurstofan hefur við aðrar stofnanir sem undir ráðuneytið heyra, svo sem Vitastofnun Íslands, Póst- og símamálastofnun og Flugmálastjórn. Hætt er við að slíkt samstarf yrði erfiðara í framkvæmd ef Veðurstofan heyrir undir annan ráðherra en þessar stofnanir. Jafnframt vill ráðuneytið benda á að í nítján nálægum löndum heyrir veðurþjónustan þar aðeins í tveimur tilvikum undir umhverfisráðuneyti en oftast undir samgönguráðuneyti eða í níu tilvikum.
    Ráðuneytið lýsir sig því algjörlega andvígt því að Veðurstofan verði flutt undir umhverfisráðuneyti.``
    Þarna kemur fram skýr afstaða ráðuneytisins þar sem það lýsir sig algjörlega andvígt tilflutningi á Veðurstofunni og einnig bendir ráðuneytið á að í

báðum þeim tilfellum sem það er að fjalla um er það afar óalgengt að þau málefni heyri undir umhverfisráðuneyti í öðrum löndum.
    Var tekið tillit til þessara sjónarmiða samstarfsaðila í ríkisstjórninni? --- Auðvitað ekki, frekar en annarra.
    Í sama streng tekur iðnrn. en þar segir í umsögn að ráðuneytið vari við of þröngri skilgreiningu á orðalaginu ,,varðveisla náttúruauðlinda`` sem kemur í fyrsta lið upptalningar á þeim málefnum sem umhverfisráðuneytið fari með og að hafa beri hugfast að iðnrn. fari með mál er varða rannsóknir og nýtingu jarðefna og orkulinda á íslensku yfirráðasvæði og að æskilegt sé að skýr skipting ábyrgðar verði í svo mikilvægum málaflokki.
    Ég vildi gjarnan fá túlkun annars hvors hæstv. ráðherrans á því hvernig gert er ráð fyrir þessari skiptingu ábyrgðar. Þetta er liður sem ekki má lenda í uppnámi.
    Varðandi hina nýju 13. gr. í reglugerð um Stjórnarráð Íslands, þar sem málefni umhverfisráðuneytis eru talin upp í sjö töluliðum, þá er það talið óviðeigandi af iðnrn. að samræmingarhlutverk umhverfisráðuneytisins nái til hlutverka annarra ráðuneyta.
    Iðnrn. vill að forsrh. skeri úr um ef vafi er hvaða ráðuneyti eigi að fara með tiltekið mál. Þessu er ég sammála því það er augljóst að annars væri verið að gefa umhverfisráðuneytinu fullmikil völd í málefnum annarra ráðuneyta, málefnum sem vissulega geta skarast. En þá á ekki annar deiluaðilanna að hafa úrskurðarvald. Það bara gengur ekki hjá siðmenntuðum mönnum. Svo einfalt er nú það.
    Í umsögn félmrn., sem er öll hin jákvæðasta, er bent á að sveitarfélög muni eftir sem áður vilja hafa sem mest forræði yfir skipulagsmálum, enda eru skipulags- og byggingarmál eitt af þeim verkefnum sem talin eru upp sem verkefni sveitarfélaga í 6. gr. sveitarstjórnarlaganna, nr. 8/1986.
    Hið nýja ráðuneyti á hins vegar að fara með þennan málaflokk skv. 3. tölul. hinnar nýju 13. gr. Ég vil hins vegar inna hæstv. ráðherra eftir því hvernig þeir sjá þennan þátt fyrir sér og á hvern hátt þeir sjái samstarfið við sveitarfélögin í landinu hvað skipulagsmálin varðar.
    Heilbr.- og trmrn. hefur mjög ákveðna skoðun á þessu basli ríkisstjórnarinnar og hugsanaleysi, en ráðuneytið segir m.a. í umsögn sinni, með leyfi forseta:
    ,,Í bréfinu frá 12. okt. er sérstaklega óskað eftir því að ekki sé skýrt frá skoðunum ráðuneytisins um sérstakt umhverfisráðuneyti og skal það mál því lagt til hliðar að sinni, þótt það sé alveg ljóst af bréfinu og greinargerðinni sem fylgdi að full ástæða er til umræðu um málið í heild.
    Þetta ráðuneyti hefur alltaf litið svo á að verði sérstakt umhverfisráðuneyti stofnað fengi það eingöngu verkefni sem snertu ytri mengun en engin verkefni sem snertu innri mengun eða ráðstafanir innan dyra sem sérstaklega lúta að því að fylgjast með heilsufari fólks eða framleiðslu og hollustu matvæla.

    Í þeim breytingum á reglugerð sem nefndin sendir er gert ráð fyrir að öll mál er varða Geislavarnir ríkisins, Hollustuvernd ríkisins, eiturefnanefnd og mál er varða heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga flytjist til nýs ráðuneytis umhverfismála. Reglugerðardrögin gera hins vegar ekki ráð fyrir að Siglingamálastofnun ríkisins flytji heldur aðeins mengunarvarnadeild stofnunarinnar. Á hinn bóginn gera reglugerðardrögin ekki ráð fyrir að Vinnueftirlit ríkisins, eftirlitshlutverk dýralækna með matvælum eða rannsóknastofnanir fiskiðnaðarins, landbúnaðarins eða iðnaðarins flytjist til umhverfisráðuneytis.
    Það er staðreynd að stofnanir eins og Geislavarnir ríkisins og Hollustuvernd ríkisins eru a.m.k. að 80% hvað starfssvið snertir stofnanir sem annast innra eftirlit og því er útilokað að flytja þær í heilu lagi til umhverfisráðuneytis eins og reglugerðardrögin gera ráð fyrir.
    Geislavörnum ríkisins er útilokað að skipta vegna smæðar og verða því að vera áfram hluti af heilbrigðiskerfinu, enda er meginhlutverk þeirrar stofnunar að fylgjast með röntgentækjum á stofnunum heilbrigðisþjónustunnar og þeim geislaáhrifum sem starfsmenn þar verða fyrir.
    Hvað Hollustuvernd ríkisins varðar er hægt að skipta þeirri stofnun á sama hátt og fyrirhugað er með Siglingamálastofnun þannig að mengunarvarnadeild Hollustuverndar verði flutt til umhverfisráðuneytis. Á mengunarvarnadeild Hollustuverndar ríkisins starfa fimm af tuttugu og átta manna starfsliði Hollustuverndar.
    Öll verkefni rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins og heilbrigðiseftirlits eru beinlínis tengd sjúkdómavörnum og heilbrigðiseftirliti þannig að það er fráleitt að flytja þessa starfsemi undir annað ráðuneyti en heilbrrn. Það er hins vegar ljóst að verði mengunarvarnadeild flutt undir annað ráðuneyti yrðu heilbrigðisfulltrúar að þjóna tveimur herrum. Meginhluti starfs þeirra er vegna eftirlits með innri mengun en hluti starfs þeirra vegna eftirlits með ytri mengun.
    Niðurstaða ráðuneytisins er því sú að nauðsynlegt sé að breyta 2. lið í 5. gr. draga í reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 96 31. des. 1969, um Stjórnarráð Íslands, þannig að í stað Hollustuverndar ríkisins komi mengunarvarnadeild Hollustuverndar ríkisins og setningarhluti í drögunum þar á eftir falli niður.``
    Í umsögn frá landbrn. kemur fram að það ráðuneyti er hreinlega á móti stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis. Við skulum líta á hvað það hafði um málið að segja, og ætla ég aðeins að taka örlítið brot úr umsögn þeirra, því hún er ansi viðamikil, með leyfi forseta:
    ,,Nærri tuttugu ára reynsla er fengin af starfi umhverfisráðuneyta í nokkrum nágrannalöndum okkar. Staðreynd er að þessi ráðuneyti hafa víða náð að þenjast út með ólíkindahraða og orðið tröllauknar stofnanir en samt ekki náð að verða virkar á þann hátt sem upphaflega var að stefnt og vonir bundnar við.``

--- Þannig byrjar nú hæstv. landbrn. Og seinna, með leyfi forseta: ,,Ekki kemur fram í drögum nefndarinnar eða meðfylgjandi gögnum markmiðssetning með stofnun umhverfisráðuneytis, greinargerð né heldur skilgreining á því hvað skuli teljast umhverfismál.``
    Seinna, hæstv. forseti, um nefndina segir landbrn.:
    ,,Ef nefndin væri sjálfri sér samkvæm ætti hún að skipa allri auðlindastjórn undir umhverfisráðuneyti, auk nýtingar jarðvegs og gróðurs, nýtingu fiskimiða, orkunýtingu í fallvötnum og jarðhita, meðferð lands í því sambandi, framkvæmd vatnalaga og fleira. Fjarri er því að mælt sé með því en á þetta er bent til að draga fram skýrari mynd af þeirri fráleitu þversögn sem felst í tillögum
nefndarinnar að þessu leyti.
    Í bréfi yðar er ekki óskað umsagnar um annað en það sem snýr að landbrn. Allt að einu vekur það furðu hversu margar stofnanir nefndin vill setja undir forræði umhverfisráðuneytis. Gangi slíkt eftir stefndi í að umhverfisráðuneytið yrði bákn, þannig að mest færi af mannafla og fjármunum í að viðhalda því sjálfu. Af mörgum er árangursríkasta leiðin til virkra aðgerða í umhverfismálum innan stjórnsýslunnar talin sú að starfrækja, innan ráðuneyta sem fara með umhverfismál, deildir eða starfssvið um þau viðfangsefni. Viðfangsefni slíkra starfssviða og úrlausnir mætti síðan sameina í umhverfisstofnun sem starfaði innan einhvers núverandi ráðuneyta eða í umhverfisráðuneyti sem teikn eru um að verði sett á laggirnar.``
    Umsögn þeirra lýkur á nokkuð skondinn hátt eða eftirfarandi, með leyfi forseta: ,,Enginn ætlar t.d. að sól skíni á annan veg á landið og nes þess með því að stjórna málum Veðurstofu Íslands úr stól umhverfisráðherra.``
    Um þessa umsögn má vafalaust hafa langt mál en ég held að orð þeirra tali alveg sínu máli og vel það. Gallinn er bara sá að ekki er hlustað á þessa aðila frekar en aðra.
    Hæstv. forseti. Það er skoðun Frjálslynda hægriflokksins að það sé ekki nauðsynlegt að stofna sjálfstætt ráðuneyti fyrir umhverfismál. Það mun fljótt verða að bákni, þenjast út og verða okkur ærið dýrt eins og reynsla annarra þjóða ætti að kenna okkur. Okkur er hins vegar fyllilega ljóst að það þarf að samræma hin ýmsu svið umhverfismála og það þarf að auka samstarf ráðuneyta á því sviði. Verkefni umhverfisráðuneytis ætti fyrst og fremst að vera eftirlitshlutverk en ekki framkvæmdarhlutverk. Það á að vaka yfir hinum ýmsu málum og benda öðrum á þegar eitthvað má betur fara eða eitthvað er í hættu með að fara úrskeiðis. Það á að sinna fræðslu- og forvarnarstörfum o.s.frv.
    Hæstv. forseti. Þar sem ég á sæti í hv. allshn. þessarar deildar tel ég
mig ekki þurfa að hafa um þetta mál fleiri orð. Það er hins vegar alveg ljóst að það þarf að ræða við allnokkra hagsmunaaðila um málið þegar það kemur til nefndarinnar og því viðbúið að það geti tekið nokkurn tíma. Ég vona hins vegar að það verði ekki

til þess að greiðslan til Borgfl. falli í vanskil.