Málsókn á hendur Magnúsi Thoroddsen
Miðvikudaginn 29. nóvember 1989


     Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Þetta er ekki mjög mikilvæg athugasemd, en þó. Hún er þessi: Finnst hæstv. forseta ekki ástæða til að hæstv. dómsmrh. sé viðstaddur þegar málið er tekið fyrir með tilliti til orða hv. þm. sem vísaði til samtals síns við hæstv. dómsmrh. Ég sé að enginn er hér úr hæstv. ríkisstjórn utan hæstv. forsrh. Mér hefði fundist vera ástæða til þess að hinkra aðeins við og bíða eftir því að hæstv. dómsmrh. geti tekið hér þátt í þessari atkvæðagreiðslu, ekki síst þar sem vitnað var til samtals hans við hv. þm. sem biður um að fyrirspurnin verði leyfð.