Málsókn á hendur Magnúsi Thoroddsen
Miðvikudaginn 29. nóvember 1989


     Jóhann Einvarðsson:
    Hæstv. forseti. Ég segi, eins og margir aðrir hafa sagt hérna fyrr, ég tek enga efnislega afstöðu til þessarar fyrirspurnar. Ég tel hins vegar mjög óeðlilegt að Alþingi sé beint eða óbeint að blanda sér í umræður um mál sem er á viðkvæmu stigi fyrir dómstólum og tel rétt að slík fyrirspurn ætti þar af leiðandi að bíða uns úrskurður er fenginn í Hæstarétti þar sem málið liggur fyrir og er þess trúlega ekki langt að bíða að því verði lokið þar. Ég segi nei.