Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hlýtur að minna hv. þm. á að hér fer fram umræða um EFTA og Efnahagsbandalagið og menn verða að leyfa þeim sem á mælendaskrá eru að halda ræður sínar. Þess vegna biður forseti um að ekki séu hafnar hér efnislegar umræður undir þeim formerkjum að menn séu að tala um þingsköp.