Ragnhildur Helgadóttir (um þingsköp) :
Frú forseti. Ég fékk nú ekki betur heyrt en að sú ræða sem hv. 1. þm. Suðurl. flutti hér fjallaði í hæsta máta um meðferð málsins og um slíkt er fjallað sem þingskapaumræðu.
Það sem ég ætla að ræða er atriði sem er algerlega nýtt fyrir mér, um meðferð málsins. Nú er það svo að blað allra landsmanna, Morgunblaðið, flytur okkur á degi hverjum margháttaðan fróðleik. Á fyrstu síðu er frétt um viðræður EFTA og EB: ,,Ályktun samin í samráði við Íslendinga`` o.s.frv., upplýsingar um störf embættismanna sem eru mikil og góð og starf utanrrh. og ég mun ekki vitna til þess sérstaklega eða lesa það upp. Þetta er okkur vel kunnugt. En í síðari dálki fréttarinnar stendur, með leyfi hæstv. forseta:
,,Á fimmtudag eiga fulltrúar utanríkisnefnda þjóðþinga EFTA-landanna fund með fulltrúum utanríkisnefndar Evrópuþingsins en EB-þingið verður að samþykkja væntanlega EFTA-EB-samninga þegar þar að kemur.``
Það er út af fyrir sig önnur saga, niðurlag þessarar setningar. En þetta atriði, fulltrúar utanríkisnefnda þjóðþinga EFTA-landanna eiga fund með fulltrúum utanríkisnefndar Evrópuþingsins. Ég spurði að sjálfsögðu formann utanrmn. Alþingis, hv. þm. Jóhann Einvarðsson, um það hvað liði fundarboði á þennan fund. Hv. þm. kannaðist ekki við þetta. Ég spyr: Hvað hefur hér gerst? Hér hlustum við á ræðu hæstv. forsrh. og hann nefnir fimm sinnum frekar en fjórum sinnum í ræðu sinni að náið samstarf skuli haft við utanrmn. Og hvað lesum við sama morgun í Morgunblaðinu? Að fulltrúar utanríkisnefndanna á þjóðþingum EFTA-landanna, allra nema Íslands, eigi fund á morgun með fulltrúum utanríkisnefndar Evrópuþingsins. Þetta er samráðið við utanrmn. Íslands. Og þó að okkur hafi verið sýnd mikil lítilsvirðing í utanrmn. Alþingis í meðferð þessa máls þar til nú á seinasta klukkutíma sólarhringsins í fyrradag og fyrsta klukkutíma sólarhringsins í gær þá vænti ég þess að við fáum skýringu á því hvað hér er um að vera.