Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Af gefnu tilefni vil ég taka fram eftirfarandi: Fundur sá sem haldinn verður á morgun og hv. fyrri ræðumaður vitnaði til er með þessum hætti: Það er fundur fulltrúa í utanríkismálanefnd Evrópuþingsins með fulltrúum af hálfu EFTA sem sæti eiga í þingmannanefnd EFTA. EFTA hefur tvær fastanefndir að störfum. Önnur er ráðgjafarnefnd fulltrúa vinnumarkaðar og atvinnulífs. Hin er skipuð fulltrúum þjóðþinganna, þ.e. þingmannasamtaka EFTA og meðal annarra sem þennan fund munu sækja af hálfu EFTA-ríkjanna er t.d. fyrrv. hæstv. utanrrh. Matthías Á. Mathiesen. Ég hef að vísu ekki lesið þessa frétt þannig að ég veit ekki hvernig frá þessu er skýrt en þetta eru réttar upplýsingar um þennan fund.