Ragnhildur Helgadóttir (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir þessa skýringu sem var mjög nauðsynleg og ég leyfi mér að fara fram á það að hæstv. utanrrh. óski eftir birtingu á þessum upplýsingum í þeim fjölmiðli sem flutti fregnina um að það séu fulltrúar utanríkismálanefnda þinganna sem sitji þennan fund því ég hygg að margir hafi reiknað með að rétt væri. Sú er e.t.v. staðreyndin að því er varðar margar EB-nefndirnar. En ég held að þetta þurfi að liggja fyrir af hálfu hæstv. utanrrh. þannig að alveg óyggjandi sé.