Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
Virðulegur forseti. Það er eðlilegt að hér sé spurt af þessu tilefni eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir gerði. Hæstv. utanrrh. hefur greint frá því hvernig að þessum viðræðum er staðið. Ég held að það væri rétt af þessu tilefni að hæstv. forseti upplýsti þingheim um það hvernig er valið í þingmannanefnd EFTA, hverjir skipa hana.