Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti mun sjá svo til að þeir fulltrúar verði öllum kunnugir. --- Umræðum um þingsköp er lokið. ( EKJ: Það er ekki hægt annað en að fá meira um orðið.) Um þingsköp? Forseti hlýtur að vekja athygli á því að það er með öllu óeðlilegt að hér séu umræður um efnisatriði þess máls sem á dagskrá er undir formerkinu að menn séu að tala um þingsköp. Ég vil biðja menn að hafa þetta í huga.