Ólafur G. Einarsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Það er í framhaldi af þeim ummælum hæstv. forsrh. hér áðan að honum þætti eðlilegt að hv. utanrmn. fengi tækifæri til þess að ræða þessa bókun ríkisstjórnarinnar sem hann kynnti hér áðan. Það er í framhaldi af þeim ummælum sem ég vil spyrja hæstv. forseta hvort hann ætli ekki að gera hlé á fundum þingsins til þess að utanrmn. gefist færi á að koma saman og ræða málin.