Guðrún Agnarsdóttir (um þingsköp) :
    Aðeins örstutt, hæstv. forseti, til að tefja ekki fyrirætlanir forseta um frestun á fundi. En mér fannst nauðsynlegt að leggja áherslu á það áður en fundur í hv. utanrmn. hefst að það hefur komið fram hér bæði í máli hæstv. fjmrh. nú síðast, í máli hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. áður að þeir líti fyrst og fremst á þetta mál sem mál ríkisstjórnarinnar, þó að þeir ætli náðarsamlegast að hafa samráð við utanrmn. Á sama tíma hafa þeir og aðrir undirstrikað það að þetta sé eitt mikilvægasta mál sem komið hafi inn á Alþingi í lengri tíð og kunni að varða sjálfstæði og afkomu Íslands í framtíðinni.
    Það er náttúrlega ljósara en taki að skýra það að um slíkt mál hlýtur Alþingi allt að fjalla, reyna að ná sáttum og móta stefnu. Þetta getur ekki verið mál einnar ríkisstjórnar sem hefur skamma ævi og hver veit hversu lengi hún lifir (Gripið fram í.) og þær skiptast á. Það getur ekki verið. Ég vil leggja þetta erindi á fund utanrmn. Það er Alþingi allt sem hlýtur að móta stefnu í þessum málum. Þetta er ekki einkamál einnar ríkisstjórnar.