Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna ræðu hv. 1. þm. Suðurl. vill forseti taka fram að það hefur margoft komið fyrir að nefndir þingsins hafi setið að störfum á þingtíma og þinghaldi verið haldið áfram þrátt fyrir það. Forseti gaf frest til klukkan korter yfir þrjú og formaður hv. utanrmn. tilkynnti mér að hann mundi reyna að takmarka fundinn við þann tíma. Ég á því von á að nefndin birtist hér á hverri stundu en vitaskuld getur málflutningur haldið hér áfram í þessu mikilvæga máli eftir sem áður.