Halldór Blöndal (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Ég hygg að við getum verið sammála um að a.m.k. sumir hv. nefndarmenn í utanrmn. taka störf sín þar svo alvarlega að þeir telja að nauðsynlegt sé að fá að hlýða á þann málflutning sem fram fer hér í deildinni varðandi það mikilvæga mál sem nú er til umræðu. Það er auðvitað réttur þingmanns að fá að gera það þó svo að hann sitji í nefnd. Hæstv. forseti sagði áðan að komið hefði fyrir að nefndarfundir væru samtímis fundum í deildum eða fundum á Alþingi. Ég hygg að hæstv. forseti geti flett upp í þingtíðindum, leitað fordæmis, og ég giska á að sú verði niðurstaðan að ekki hafi verið haldinn formlegur fundur í nefnd sem mál heyrir undir samtímis því sem fundur er haldinn í deild eða sameinuðu þingi. Það mál sem hér er til umræðu heyrir undir utanrmn. og af þeim sökum er það í anda þingsins, samkvæmt gamalli þingvenju, að það mál er ekki til umræðu á sama tíma hér í hinu sameinaða þingi. Hitt er hins vegar rétt að stjórnarandstaða hefur stundum hliðrað til þannig að fundir hafa verið haldnir í nefndum um óskyld mál meðan þingfundur er haldinn.
Nú hittist svo á að hæstv. forsrh. gerði það að tillögu sinni hér fyrr í dag að fundum yrði frestað meðan rabbað yrði um þetta mál í utanrmn. --- ég held ég muni það rétt að hæstv. forsrh. hafi notað orðið ,,að rabba``. (Gripið fram í.) Við getum flett upp á því hvort rétt er. Það væri kannski rétt, hæstv. forseti, að fá útskrift af ræðunni sem fyrst til þess að hægt sé að fletta upp á því. Mér þykir vænt um ef hæstv. forsrh. hefur notað annað orð og ég man þetta rangt en það er rétt að athuga það. Það er ekki kjarni málsins. Kjarni málsins er sá að hæstv. forsrh. gerði sér grein fyrir að það er í senn óþinglegt og óviðeigandi að umræður um Evrópubandalagið og EFTA haldi áfram á sama tíma og fundur er í utanrmn.
Ég óska eftir því að hæstv. forseti ráðfæri sig við þá sem kunnastir eru þingvenjum um þetta mál og vil mælast til þess að gert verði hlé á þessum fundi þannig að hann geti ráðfært sig við formenn þingflokka eins og venja er til þegar ágreiningur kemur upp af þessu tagi. Nóg er ringulreiðin í ríkisstjórninni þó að sú ringulreið komi ekki hingað inn í sali Alþingis.
Ég hlýt einnig að vekja athygli á því undir þessum kringumstæðum að við tveir þingmenn Sjálfstfl. sátum lengst af með formanni fjh.- og viðskn. á fundi í morgun og gat þó annar okkar ekki verið nema hluta af þeim fundi þar sem hann var bundinn við önnur störf fyrir Alþingi og á þessum fundi var fullt samkomulag um það milli mín og formanns fjh.- og viðskn. Ed. að ekki yrði boðað til nýs fundar í nefndinni fyrr en í næstu viku sem olli því að ég gerði ráðstafanir til þess að verja þeim tíma með öðrum hætti í fyrramálið. Eftir sem áður er boðaður fundur í þessari nefnd í fyrramálið og auðvitað spurði ég formann fjh.- og viðskn. Ed. hvort hann væri
búinn að kynna sér það að stjórnarsinnar gætu setið fundi nefndarinnar í fyrramálið, hefðu tíma til þess. Það er auðvitað mjög vafasamt að stjórnarsinnum eigi að haldast það uppi að láta gesti utan úr bæ koma á fundi nefndar til viðræðu, verja sínum dýrmæta tíma til þess, og síðan sjá stjórnarþingmenn ekki ástæðu til þess að hlýða á mál þeirra í þeim nefndum sem viðkomandi mál heyra undir. Þessir erfiðleikar sem þessu nefndarstarfi urðu samfara ollu því að við þingmenn Sjálfstfl. óskuðum eftir því við fulltrúa Ríkisútvarpsins að þeir kæmu til fundar við nefndina síðar þannig að þeirra erindi við nefndina gæti fengið sómasamlega meðferð og auðvitað voru þeir beðnir afsökunar á þeirri snuðferð sem þeir fóru hingað til fundar við fjh.- og viðskn. Ed.
Ég ítreka, virðulegi forseti, mína beiðni. Hæstv. forseti vísaði til þinghefðar. Hæstv. forseta er það fullkunnugt að undir kringumstæðum eins og þessum hefur það verið viðtekin venja þeirra forseta sem vilja halda uppi góðum aga og góðri reglu í þingsölum að verða við beiðni stjórnarandstöðu um það að gera stutt hlé á fundi til að hægt sé að ræða við formenn stjórnarandstöðu um málsmeðferð. Ég get ekki látið mér detta í hug eitt andartak að hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands, svo mikilvægt sem það ráðherraembætti annars er, hafi á móti því að þinglega sé haldið á þessu máli.
Ég hlýt líka, hæstv. forseti, að gagnrýna það mjög alvarlega að eftir að hæstv. forsrh. hafði óskað eftir því héðan úr ræðustól í dag að fundi yrði frestað til þess að utanrmn. gæti komið saman á fund skuli hæstv. forseti brjóta gegn þessu sem allir þingmenn héldu að yrði orðið við til þess að gefa formanni Alþb. tækifæri til að koma hér upp í ræðustól á Alþingi, brjóta þannig venju, einungis af því að þessi maður átti í hlut, láta sína sérhagsmuni sem alþýðubandalagsmaður sitja fyrir skyldum sínum sem forseti sameinaðs Alþingis. Ekki þarf að hafa mörg orð um það að hæstv. fjmrh. hafði geð í sér til þess að koma hér upp í ræðustól undir þessum kringumstæðum.