Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð fyrir rúmu ári í miklum flýti. Svo miklum flýti að menn leyfðu sér að ganga þvert á reglur lýðræðisins og settust í ráðherrastóla án vissu um það hvort stjórnin hefði meirihluta á þingi. Í þá daga teystu menn á álfakónginn. Hann fullvissaði þá um að þegar mikið lægi við myndi huldufólkið ganga úr björgunum. Það gekk eftir. Í verðlaunaskyni fengu tveir þm. Borgfl. sinn ráðherrastólinn hvor nú í haust. Eftir að huldufólkið var allt orðið sýnilegt í mannheimum var engin þörf fyrir álfakónginn lengur og hann settur til hliðar. Markmið ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar voru m.a. þau að leysa bráðan efnahagsvanda, treysta grundvöll atvinnulífsins og stöðu landsbyggðarinnar. Það er þó löngu orðið ljóst að ekki var það getan til að takast á við þessi vandamál, hvað þá hugmyndaauðgi þeirra að leita nýrra lausna sem knúði menn til að taka sæti í ríkisstjórninni. Ekki var það heldur hugsjónaólgan. Ríkisstjórnin hefur frá upphafi staðið ráðvillt á krossgötum og síðustu daga hefur komið æ betur í ljós að nú ætlar hver sína leið --- hvað sem tautar og raular. Því er ærin ástæða að staldra nú við, meta verk hennar, meta hvort henni er yfirleitt treystandi til að takast á við það sem fram undan er.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. vill til Evrópu til mikilvægra viðræðna. Lætur hann sér í léttu rúmi liggja hver hugur Íslendinga er og ekki kærir hann sig um skýrt umboð frá sinni eigin ríkisstjórn, enda hefur hann það ekki. Undirstrikar þetta í raun hugmyndir hans um lýðræðisleg vinnubrögð og þá ábyrgð sem utanrrh. á hverjum tíma hlýtur að bera gagnvart þjóðinni. Honum er því ekki treystandi.
Ólafur Ragnar Grímsson fjmrh. og fyrrv. ,,verkalýðssinni`` vinnur kappsamlega að því að koma matarskattinum endanlega á og vill fá til þess frið. Lætur hann því önnur mikilvæg verk bíða. Nú eru fjórar vikur til áramóta og enn ríkir alger óvissa um það hvernig og hvenær ríkið ætlar að greiða skuldir sínar við sveitarfélögin í landinu. Enga áætlun um uppgjör er að finna í fjárlagafrv., engar reglugerðir liggja fyrir og fjvn. fær ekki nauðsynlegar upplýsingar til að geta sinnt starfi sínu. Fjmrh. hefur engar áhyggjur af stöðu þess starfsfólks sem um áramót fer að vinna sambærileg störf hjá ríki og áður voru unnin hjá sveitarfélagi. Vílar hann ekki fyrir sér að lækka fólk í launum, ,,verkalýðssinninn`` fyrrverandi.
Innan ríkisstjórnarinnar er engin samstaða um með hvaða hætti og hvenær virðisaukaskattur á að taka gildi þó yfirlýsingar hafi verið gefnar um það hér í dag. Eitt eiga þeir þó sameiginlegt. Í upphafi voru þeir á móti hugmyndinni um virðisaukaskatt. En nú ætlar fjmrh. að koma fram áformum sínum um virðisaukaskatt og hækkun tekjuskatts eftir því sem okkur hefur verið sagt. Þegar þessu verður lokið verður enginn tími aflögu til að fjalla um málefni ríkis og sveitarfélaga. Hann mun fara sínu fram þar eins og annars staðar. Er ástæða til að treysta honum?
Steingrímur Hermannsson er maður skammtímaminnis og teygjanlegra svara. Flokkur hans hefur átt aðild að ríkisstjórn í næstum tvo áratugi. Sjálfur hefur hann setið í stóli forsrh. síðustu sex árin að einu undanskildu. Hverjar eru afleiðingarnar af forræði Framsfl. í öll þessi ár? Ýmis eru verk þeirra en á þessari stundu stendur þó eitt ofar öðru. Þegar Framsfl., með bróðurlegu samkomulagi við Sjálfstfl., gaf vextina frjálsa. Nú fórnar forsrh. höndum yfir háum fjármagnskostnaði og man greinilega ekki fyrri gjörðir sínar.
Hvaða framtíðarmynd blasir við fólki til sjávar og sveita? Hverjar eru lausnir þeirra sem líta á sig sem bjargvætti þjóðarinnar? Eftir að fjármunum Atvinnutryggingarsjóðs hafði verið deilt út stóðu mörg útgerðarfyrirtæki sem fyrirgreiðslu höfðu hlotið í sömu sporum, nema hvað skuldahalinn hafði lengst nokkuð vegna björgunaraðgerðanna. Enginn veit enn hversu traustur rekstrargrundvöllur þeirra er þrátt fyrir aðgerðirnar. Í öðrum atvinnugreinum blasir við hnignun, jafnvel hrun. Hundruð kvenna um land allt hafa misst vinnu sína þegar sauma- og prjónastofur hafa orðið að leggja upp laupana ein af annarri. Bygginga- og trésmíðaverkstæði verða gjaldþrota, hrun blasir við í skipasmíðaiðnaði og samdráttur í öðrum atvinnugreinum. Ef svo fer sem horfir verða það ekki einungis einstaklingar og fjölskyldur sem missa lífsviðurværi sitt. Þjóðin öll glatar þeirri verkþekkingu sem er til staðar í landinu.
Í landbúnaðarmálum ríkir mikil upplausn og hafa bændur orðið að láta ýmislegt yfir sig ganga hin síðari ár. Tölur sýna að 40% búa eru svo smá að þau bera aðeins eitt ársverk. Hjón reka þó flest búin. Flest hafa börn á framfæri sínu eða jafnvel unglinga sem sækja þurfa nám fjarri heimabyggð með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. Þó er það viðurkennd staðreynd að tvo þarf til að framfleyta fjölskyldum. Atvinnuleysi fer vaxandi og bitnar harðast á konum sem eru í miklum meiri hluta atvinnulausra. Þar að auki er alltaf nokkuð um dulið atvinnuleysi kvenna. Hvorki sveitakonur né heldur þær konur sem um þessar mundir eru búnar að koma upp börnum sínum og væru tilbúnar til að fara
á vinnumarkaðinn láta skrá sig atvinnulausar. Hvað veldur þeirri hnignun sem hvarvetna má sjá í atvinnulífinu og hvað um batamerki? Það er greinilegt að innan ríkisstjórnarinnar er engin samstaða um atvinnustefnu og úrræði. Því skal hún víkja.
Vegna bágrar stöðu kvenna á vinnumarkaðnum verður að grípa til sérstakra aðgerða í þeirra þágu. Ekkert bólar á slíku framtaki hjá ríkisstjórninni þrátt fyrir fögur fyrirheit. Kvennalistakonur hafa frá upphafi verið ötular við að ræða atvinnumál kvenna, ekki síst konurnar í dreifbýlinu. Það vekur athygli hversu hugmyndaríkar konur eru og hvernig þær hugsa sér atvinnuuppbyggingu sem hefur í fyrirrúmi samvinnu og tillit til aðstæðna kvenna. Árangurinn af umræðum okkar hefur m.a. birst í till. um að stofnuð verði sérstök deild við Byggðastofnun sem hafi það hlutverk eingöngu að vinna að uppbyggingu atvinnu fyrir
konur. Sjálfsagt er að konur hafi frumkvæði en hvatning, ráðgjöf og bætt skilyrði eru nauðsynleg. Sköpun starfa fyrir konur í dreifbýli er mikilvægur liður í að koma í veg fyrir óæskilega byggðaröskun og að lífvænlegar byggðir fari í eyði. Ríkisstjórnin hefur ekki gert sér grein fyrir nauðsyn þess að hlusta á hugmyndir kvenna og taka tillit til þeirra þegar rætt er um atvinnulíf og búsetuþróun. Það er ein mikilvæg ástæða þess að kvennalistakonur treysta þessari ríkisstjórn ekki. Framvinda mála á landsbyggðinni til sjávar og sveita er stórhættuleg.
Nú ganga stjórnvöld fram blinduð af draumum um stóriðju á suðvesturhorni landsins. Þeir draumar koma undarlega fyrir sjónir. Ekki leysir stóriðja atvinnuvanda kvenna í byggðarlögum landsins. Hún mun kosta okkur ómældar erlendar skuldir og hún mengar umhverfið. Stóriðja á suðvesturhorninu mun hafa í för með sér enn frekari byggðaröskun en orðin er. Síðast en ekki síst er erlend stóriðja síst til þess fallin að örva frumkvæði og efla trú okkar á eigin getu og þær auðlindir sem við eigum. Hvað varð um stefnu Alþb. í stóriðjumálum og erlendum fjárfestingum hér á landi?
Þegar búvörulög voru sett á síðasta kjörtímabili undir forustu Framsfl. voru bændur óspart hvattir til að draga úr hefðbundnum búskap og snúa sér að nýjum bjargráðum. Lausnarorðin voru loðdýrarækt og fiskeldi og skyldi stærri hluti fjárveitinga til landbúnaðarins renna til þeirra. Allir vita hvernig staða þessara búgreina er í dag og stjórnvöld hljóta með nokkrum hætti að bera ábyrgð á því hvernig komið er. Bæði vegna þess ofurkapps sem stjórnvöld lögðu á uppbyggingu þessara búgreina og skilningsleysis á því hvaða skilyrði þarf að skapa atvinnurekstri í landinu til þess að hann sé samkeppnisfær. Þar komum við enn og aftur að vöxtunum. Þær aðgerðir sem nú eru fyrirhugaðar vegna loðdýraræktar hljóta því að vekja hneykslun og undrun á ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar. Hreinlegra hefði verið fyrir stjórnarflokkana að segja: Hingað og ekki lengra, í stað þess að láta þm. Alþfl. ákveða langa hengingu. Hvar eru nú sjálfskipaðir málsvarar bænda, Framsfl.? Hvaða stefnu ætla þeir að taka í þessu máli? Eru bændahjörtu þeirra farin að slá í takt við
landbúnaðarhjarta Alþfl.? Hér sem í öðrum málum ná stjórnarflokkarnir ekki saman um aðgerðir og útkoman úr þessu dæmi verður óskapnaður.
Sagt hefur verið að Steingrímur Hermannsson sé hagleiksmaður við smíðar. Í haust lofaði hann Júlíusi Sólnes að smíða handa honum nýtt ráðuneyti og nýjan stól. Svo virðist sem hann hafi gleymt að hugsa fyrir efniviði í stólinn og teikningin hefur ekki verið samþykkt enn. Það er enn eitt dæmið um óleyst verkefni og má mikið vera ef forsrh. sleppur með óskaddaða fingur frá smíðinni. Vegna skipulagsleysis, fyrirhyggjuleysis og samstöðuleysis ríkisstjórnarinnar eru litlar líkur á því að Júlíus Sólnes fagni nýju ári í mjúku hægindi umhverfisráðuneytis.
Slík vinnubrögð sem þau er ég nú hef lýst eru konum ekki eiginleg. Þær skipuleggja verk sín með
hliðsjón af framtíð barna sinna, tillitssemi til annarra með samstöðuna að leiðarljósi, vitandi það að án hennar fæst engu framgengt. Verk ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar einkennast af hugmyndafátækt, bráðabirgðalausnum og algerum skorti á samstöðu um framtíðarstefnu. Þetta hefur þegar valdið þjóðinni ófarnaði og því ber stjórninni að víkja. --- Góðar stundir.