Vantraust á ríkisstjórnina
Fimmtudaginn 30. nóvember 1989


     Karvel Pálmason:
    Virðulegur forseti. Þegar núv. hæstv. ríkisstjórn var mynduð gerði ég þá grein fyrir afstöðu minni að ég væri á engan hátt skuldbundinn við hana en mundi láta málefni ráða í afstöðunni til hennar og greiða atkvæði hér á Alþingi samkvæmt sannfæringu minni eins og stjórnarskrá íslenska lýðveldisins gerir ráð fyrir að hv. þingmenn virði og því mun ég halda áfram.
    Mér er ljóst að ýmislegt hefur farið úrskeiðis nú og ekki síður áður í stjórn landsins og valdið mörgum vonbrigðum, þar á meðal mér, en sú tillaga sem hér er til afgreiðslu frá oddvitum Sjálfstfl., Kvennalista og frjálslyndum hægrimönnum um að demba þjóðinni nú, á þessum árstíma og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, út í kosningar er ekki bara dómgreindarleysi heldur líka algjört ábyrgðarleysi og nánast tilræði við þjóðfélagið. Slíkt er gert í tilfinningalegu uppnámi og eigin vanmati. Það er öllum ljóst að þessir aðilar hafa á engan hátt, nema síður sé, vitkast í baráttunni gegn þeim vanda sem sumir af þeim sjálfum hafa skapað og þjóðin á við að glíma. Í ljósi þessara staðreynda segi ég nei.