Vantraust á ríkisstjórnina
Fimmtudaginn 30. nóvember 1989


     Skúli Alexandersson:
    Virðulegi forseti. Ég er ekki ánægður með það hvernig tekist hefur til síðustu 14 mánuði með málefni okkar aðalatvinnuvega og landsbyggðarinnar hjá núv. og fyrrv. ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Óánægja mín er þó ekki svo mikil að ég taki undir með þeim sem telja góða lausn að fara nú út í kosningar að ósamþykktum fjárlögum fyrir árið 1990, ófrágengnu nýju en þó löngu ráðgerðu og samþykktu skattakerfi, virðisaukaskattinum og í miðjum mjög mikilsverðum viðræðum um framtíðarviðskiptahagsmuni okkar hjá EFTA og Efnahagsbandalaginu. Ég segi nei við því ráðleysi sem uppi kæmi ef þessi vantrauststillaga Sjálfstfl., Kvennalistans og Frjálslynda hægriflokksins yrði samþykkt. Ég segi nei.