Anna Ólafsdóttir Björnsson:
Virðulegi forseti. Umræður um skýrslu utanrrh. vegna EB-EFTA viðræðnanna hafa nú staðið hátt á aðra viku. Vera má að fyrir fram hafi utanrrh. ekki vænst svo mikillar umræðu um skýrsluna né þeirra ákveðnu viðbragða sem dregið hafa umræðurnar á langinn. Þess hefur verið freistað að fá utanrrh. til að líta á fleiri sjónarmið en þau sem hann virðist staðráðinn í að fylgja. Það kom honum þó á óvart að komast ekki til áframhaldandi viðræðna að lokinni eins til tveggja daga umræðu. Þessi afdráttarlausu viðbrögð hefðu þó ekki átt að koma á óvart því hér er um að ræða viðamikið mál, flókið og vandasamt í meðförum og stórháskalegt sjálfstæði okkar ef ekki verður rétt á málum haldið.
Margir hafa orðið til að gera grein fyrir þeim mismunandi sjónarmiðum sem eru til viðræðnanna, hvort halda eigi áfram á sömu braut nú eða sækja fast beinar samningaviðræður Íslendinga við Evrópubandalagið og fara að tala um það sem einkum snýr að okkur, fiskinn. Flestir virðast a.m.k. geta verið sammála um að sala sjávarfangs sé okkar stærsta hagsmunamál í viðræðum við EB. Það sem menn greinir á um er hvernig best sé staðið að útvíkkun á bókun 6 þannig að saltfiskurinn komist inn fyrir tollamúrana og að sjálfsögðu hafa umræður ekki síst snúist um hvernig fiskafurðir okkar komast sem greiðast inn á innri markaðinn í Evrópubandalaginu. En í afstöðu minni vil ég einnig vísa til ræðu hv. 12. þm. Reykv. Kristínar Einarsdóttur í upphafi þessarar umræðu, svo og ræðu hennar í vantraustsumræðunni sl. fimmtudagskvöld.
Auk þessa hafa einnig heyrst mismunandi blæbrigði af ótta eða óttaleysi við það að tengjast Evrópubandalaginu of nánum böndum. Menn hafa einkum beint sjónum sínum að hinu yfirþjóðlega og andlýðræðislega valdi þess. En það fylgja fleiri bögglar skammrifi og félagsleg málefni eru að miklu leyti óleyst stærð þegar sameiginlegur vinnumarkaður Evrópu verður endanlega kominn á. Staða okkar gagnvart honum er því meira en einungis spurning um samræmingu á skólaprófum og starfsréttindum og verður ekki leyst með fyrirvörum einum saman. Hún getur skipt sköpum um afkomu einstaklinga og því nauðsynlegt að halda vel á málum. Svör hæstv. iðnrh. nú áðan um fáein atriði er varða sameiginlegan vinnumarkað eru hvergi nærri fullnægjandi.
Það er engin tilviljun að margir hafa orðið til að benda á hve mikla gætni þarf að sýna í samskiptum við það veldi sem Evrópubandalagið er nú að verða. Ég tel viðræður okkar við Evrópubandalagið varhugaverðar í samfloti við aðrar EFTA-þjóðir, þjóðir sem eiga hagsmuna að gæta sem eru í flestu gerólíkir hagsmunum okkar og sumar þessar þjóðir eru á leið til fullrar aðildar að bandalaginu. Því miður virðast ekki allir skynja áhættuna á sama hátt. Hæstv. utanrrh. tók af skarið í ræðu sinni í upphafi þessarar umræðu og hafnaði allri gætni og undantekningum. Hann metur það greinilega svo að eina leiðin til að bera
höfuðið hátt í samskiptum þjóða sé að setja engin skilyrði heldur ganga að flestu eða öllu sem þær leggja fyrir okkur. Öðruvísi var ekki hægt að skilja orð ráðherra. Tækifærið er núna, sagði hann, hvort það kemur aftur getur enginn verið viss um.
Hve margir hafa ekki misstigið sig og hrasað í asanum við að missa ekki af neinu? Raddir þeirra sem segja okkur að flýta okkur hægt eru vissulega margar. Háværari en ekki endilega fleiri eru þó þeir sem telja að við séum að missa af strætisvagninum ef við hellum okkur ekki út í samstarf eða aðild að Evrópubandalaginu, nánast upp á hvaða býti sem það gæti nú orðið fyrir okkur. Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis í kynningu á því hvað slíkt mundi þýða fyrir Íslendinga. Aðild að innri markaði Evrópubandalagsins eða einhvers konar evrópskri efnahagsheild getur þýtt að við göngum inn í kerfi sem mundi þýða stórt skref aftur á bak í ýmsum réttindamálum sem nú þykja sjálfsögð, t.d. hvað varðar félagsleg réttindi, ef ekki með beinum hætti þá með óbeinum.
Menn vísa gjarnan til þess að ekkert eigi að breytast í réttindamálum hvers lands fyrir sig heldur njóti fólk á vinnumarkaði réttinda þeirra sem nú gilda á hverjum stað. Þar eru þó óleyst ágreiningsmál enn. En hvers virði eru okkar félagslegu réttindi ef við förum að standa í beinni samkeppni við ríki sem bjóða atvinnurekendum upp á að fá að færa starfsemi sína til landa þar sem kostnaður er lægri en hér á landi, einmitt vegna þess að vinnuafl er þar ódýrt, fólk lágt launað og réttlítið. Það er hæpið að meiri hluti þjóðarinnar vildi beina aðild að EB ef það lægi skýrt fyrir hvaða áhrif það hefði t.d. á réttindi fólks á vinnumarkaði.
Því miður hefur skort mjög á umfjöllun um vinnumarkað og félagsleg réttindi og þau hafa ekki vegið þungt í umræðu um sameiginlega fundi um EB og EFTA.
Menn hafa frekar beint sjónum að öðrum þáttum hins fjóreina frelsis, einkum fjármagni og öðrum viðskiptum. Ríkisstjórnin hefur gert fyrirvara vegna vinnuaflsflutninga milli landa vegna smæðar vinnumarkaðarins hér, lágværri röddu í hinum samhljóma EFTA-kór. Þar er aðeins hluti vandans. Um annað er lítið rætt. Samt hefur sú litla umfjöllun sem orðið hefur dugað til að vekja fleiri spurningar en hún svarar.
Í stórum dráttum má segja að við stöndum nú frammi fyrir því að þurfa að
taka afstöðu til meira eða minna sameiginlegs vinnumarkaðar Evrópu. Í skýrslu hæstv. utanrrh. á bls. 23 segir, með leyfi forseta:
,,EFTA-ríkin hafa jafnframt orðið þess áskynja í viðræðunum undanfarna mánuði að Evrópubandalagið telur að ekki sé hægt að skilja að frjálsan atvinnurétt og frelsi á öðrum samstarfssviðum og komi samningar um önnur svið því ekki til greina nema samningar náist um þennan þátt.``
Og síðar í sömu skýrslu segir, með leyfi forseta, að ,,ríkisborgari eins aðildarríkis má fara til annars aðildarríkis og dvelja þar í ákveðinn tíma til að leita
eftir atvinnu og hann má dvelja í landinu ef hann hefur fengið þar atvinnu. Hann á jafnframt að njóta sömu kjara og aðbúnaðar við vinnu og ríkisborgarar þess lands þar sem atvinna fer fram auk þess sem hann á að hafa sömu aðstöðu til starfsþjálfunar. Enn fremur er óheimil mismunun er varðar húsnæði.
Launþegar sem flytjast á milli landa eiga að njóta sömu félagslegra réttinda og ríkisborgarar þess aðildarríkis þar sem þeir starfa hvort sem þau réttindi eru beint tengd atvinnunni eða ekki. Þannig njóta þeir m.a. almannatryggingaréttinda og lífeyrisréttinda til jafns við innlenda aðila auk þess sem þeir hafa jafnan rétt til þátttöku í stéttarfélögum.``
Vissulega má greina ákveðinn ótta EFTA-þjóðanna í skýrslu utanrrh. Í viðræðunum gera þau ráð fyrir að sums staðar þurfi aðlögun og eins og ég drap á áðan gerðu fulltrúar Íslands sérstakan fyrirvara vegna smæðar landsins miðað við sameiginlegan vinnumarkað Evrópu, auk þeirrar hættu að auðlindir okkar, t.d. fiskimið, komist í hendur erlendra manna. En því miður er þetta ekki nóg um þann þátt innri markaðarins sem minnstur gaumur hefur verið gefinn af þeim sem ráðið hafa ferðinni innan EB.
Fáum blandast hugur um að málefni vinnumarkaðarins og félagsleg réttindi eru veiki hlekkurinn í þeirri heildarkeðju umræðna sem átt hafa sér stað árum og áratugum saman um sameiginlegan Evrópumarkað. Handhafar fjármagns og aðstöðu knýja á um frelsi og það er frelsi án tillits til þess að frelsi annarra og réttindi mæta afgangi.
Í nýútkomnum bæklingi stærstu launþegasamtaka Norðurlanda, sem m.a. kom út hér á Íslandi, er fjallað um afstöðu verkalýðshreyfingarinnar til félagsmálefna Evrópubandalagsins og þar segir m.a., með leyfi forseta:
,,Á grundvelli álits efnahags- og félagsmálanefndar EB og Evrópuþingsins um grundvallarréttindi í vinnumarkaðs- og félagsmálum lagði framkvæmdanefndin snemma sumars 1988 fram drög að tillögum um hvernig hún álítur mögulegt að koma á svokallaðri félagslegri undirstöðu lágmarksréttinda. Framkvæmdanefndin lagði til að þessum réttindum yrði að hluta hrundið í framkvæmd með svokallaðri hátíðlegri yfirlýsingu frá forsætisráðherrum um kjarna réttindanna og að hluta með starfsáætlun um ákveðna framkvæmd í aðildarríkjum.``
Og enn fremur: ,,Evrópsk verkalýðshreyfing hefur tekið hugmyndum um hátíðlega yfirlýsingu með miklum efasemdum vegna þess að erfitt getur verið að meta hversu skuldbindandi hún er. Þar að auki virðist dagsetning á samþykkt starfsáætlunarinnar fela í sér enn meiri seinkun þess að félagslega hliðin fái ákveðið innihald á þessu mikilvæga sviði.``
Og loks: ,,Norræn verkalýðshreyfing getur ekki sætt sig við að velferðarkerfi okkar verði skorið niður vegna skatta- og gjaldasamræmingar í EB. Það útilokar þó ekki nauðsyn þess að fjalla ítarlega um þróun og endurskipulagningu opinbera geirans. Slík endurskipulagning verður að fara fram með þátttöku opinberra starfsmanna og samtaka þeirra. Samtímis
ráðleggur norræn verkalýðshreyfing öllum Evrópuríkjum að tryggja launafólki og íbúum aðgang að öflugu og þróuðu velferðarkerfi.``
Í ritinu er ekki lagt mat á hugsanlega þróun sameiginlegs vinnumarkaðar Evrópu heldur fyrst og fremst lögð áhersla á að koma með hugmyndir og tillögur norrænu verkalýðshreyfingarinnar um hvernig þessi þróun ætti að vera. Markmið þau sem koma fram í ritinu eru mjög góð og vel unnin. Á hinn bóginn er því ekki að neita að víða á Norðurlöndum eru miklar efasemdaraddir um að þessi sjónarmið muni ráða gangi mála. Á Norðurlöndum er lögð mikil áhersla á að ef sameiginlegir vinnumarkaðir eigi að geta verkað án þess að um beina afturför verði að ræða í löndum þar sem félagsleg réttindi eru mest verði að samræma þessi réttindi innan Evrópu. Bæklingur þessi er uppskrift að því hvernig þau eigi að vera og þar með tilraun norrænna stéttarfélaga til að hafa áhrif á þróunina í framtíðinni. Bæklingurinn er einnig ætlaður að vera öðrum evrópskum launþegahreyfingum stuðningur þar sem þær eiga undir högg að sækja.
Séu vinnumarkaðsmál og félagsleg réttindi óljós á hinum fyrirhugaða innri markaði Evrópu, þá gætir jafnvel enn meiri óvissu ef litið er á málið út frá mismunandi sjónarmiðum karla og kvenna. Hreyfanlega vinnuaflið, sem margir sjá sem kost á sameiginlegum vinnumarkaði, er í reynd mjög vafasamur ávinningur. Aðalhættan er sú að þessi sameiginlegi, hreyfanlegi markaður verði talinn allsherjarlausn þegar á bjátar í einu landi en næga atvinnu er að hafa annars staðar. Reynslan hefur kennt okkur að það eru karlarnir sem flytjast fyrst milli landa og ef eða þegar konur og börn fylgja á eftir hefur oft komið upp
sú staða að fjölskyldurnar einangrast í gettóum farandverkafólks. Er það þróunin sem við æskjum? Oft er litið á konur sem varavinnuafl. Hætta er á að þeirrar tilhneigingar gæti jafnvel enn meira ef vinnumarkaðurinn fer á fulla ferð, konurnar einfaldlega sitja eftir.
Á öðrum Norðurlöndum er andstaða kvenna gegn aðild að Evrópubandalaginu mun meiri en andstaða karla. Í skoðanakönnunum í Noregi í fyrra voru helmingi fleiri konur andvígar aðild að EB en karlar. Erfitt er að ráða í íslenskar skoðanakannanir þar sem þær lýsa fyrst og fremst ótrúlega lítilli þekkingu þjóðarinnar á EB og EFTA. Einungis 14% landsmanna gera þokkalega greinarmun á þessum bandalögum svo að það er hæpið að reyna að nýta niðurstöður íslenskra kannana. Þeim mun brýnna er að taka upp ábyrga umfjöllun og fræðslu um málefni Evrópu.
Vissulega hefur verið reynt að fjalla um jafnréttismál í viðræðum um félagsleg réttindi fólks sem aðild á að innri markaði Evrópu. Þar eru ýmsar hugmyndir á kreiki, t.d. um að í jafnlauna- og jafnréttismálum verði sönnunarbyrði gerð öfug. Í stað þess að konur þurfi að sanna að þær séu beittar misrétti þurfa þá þeir sem þær kæra að sanna að þær
hafi ekki verið beittar órétti. Þetta eru athyglisverðar hugmyndir og geta án efa verið liður í að bæta stöðu kvenna.
Virðulegi forseti. Ég fer nú að ljúka máli mínu. Ég hef kosið að víkja í ræðu minni einkum að þeim málum sem mér finnast hafa orðið út undan í umræðunni um sameiginlegan innri markað EB og EFTA. Mér sýnist að EFTA-löndin stefni hraðbyri inn í einhvers konar innri markað Evrópu þar sem félagsleg málefni eru óleyst vandamál og staða fólks á vinnumarkaði óljós. Ég tel okkar hagsmuna ekki gætt í þeim viðræðum sem ríkisstjórnin virðist nú stefna að undir forustu hæstv. utanrrh. Hagsmunir EFTA-ríkjanna varðandi fjórfrelsið svonefnda eru svo ólíkir okkar hagsmunum að þar eigum við ekki samleið. Beinar samningaviðræður eru miklu líklegri til að skila þeim árangri sem við leitum eftir, að tryggja viðskiptahagsmuni okkar og sölu sjávarfangs án þess að við leyfum sjónarmiðum annarra þjóða með ólíka hagsmuni að teyma okkur gagnrýnilaust í sameiginlegan Evrópumarkað. Engum dyrum hefur verið lokað og því megum við ekki láta bráðlæti leiða okkur í gönur.