Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Hv. 2. þm. Austurl. spyr hvort mér sé kunnugt um að í fórum utanrrn. sé málsskjal frá ráðherranefnd Evrópubandalagsins sem lýsi allt annars konar viðhorfum til þeirra undirbúnings- og samningsviðræðna sem ræða skal á fundinum 19. des. í Strasbourg. Mitt svar við þeirri spurningu er að mér er ekki kunnugt um slíkt skjal og tel að það hafi ekki ríkt yfir því nein leynd sem hér var að orðum vikið. Ég vil taka það fram að ég hef ekki lesið þessar fréttir í Verdens Gang sem til var vitnað, en mun að sjálfsögðu kanna það mál.