Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka viðbrögð hæstv. ráðherra og treysti því að hann geri gangskör að því nú hið fyrsta að kanna tilvist og eðli þessarar skýrslu sem ég minnist ekki að hafi komið inn á borð utanrmn. nema hún sé þá gömul og ekki þess eðlis sem ætla má af þessum blaðafréttum. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra upplýsi það sem fyrst hér við umræðuna hvað hér er um að ræða og sjái til þess, ef hér er um málsgagn að ræða sem varðar þetta efni, að það berist utanrmn. hið fyrsta, enda hafi nefndin ekki fengið það í sínar hendur.