Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég tel enga ástæðu til að tefja þessa umræðu með umfjöllun um þessa skýrslu. Skýrslan sem hér er nefnd er innanhússskjal í Evrópubandalaginu. Hún hefur borist utanrrn., ég hef gert ráðstafanir til þess að hún verði send utanríkismálanefnd og Evrópustefnunefnd þingsins og það verður gert þegar í stað. Í henni eru eðli málsins samkvæmt upplýsingar sem Evrópubandalagið hefur ekki látið birta opinberlega og ég mun þess vegna biðja þá sem við henni taka að fara með hana sem trúnaðarmál.